02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
Frsm. (Bergur Jónsson):
Meiri hl. sjútvn., allir nema hv. þm. Ísaf., hefir borið fram brtt. á þskj. 625 við 4. gr. frv. Í Ed. bættist inn í frv. ákvæði um að láta fátæka, efnilega námsmenn sitja fyrir vinnu, allt að helmingi þeirrar aukningar, sem yrði á atvinnu við Raufarhafnarverksmiðjuna, þegar sú aukning er komin, sem frv. gerir ráð fyrir. Við fengum þær upplýsingar, að það myndu vera um 40 menn, sem bættust við af starfsmönnum við þessa aukningu, og okkur finnst óeðlilegt, að meira en 1/3 af þessari tölu yrðu fátækir, efnilegir námsmenn. Það er kunnugt, að margir þeirra manna, sem ganga gegnum langt nám, eru svo fátækir, að þeim veitir ekki af að fá sumaratvinnu, og okkur fannst ekki rétt að loka alveg leiðinni fyrir þeim. Okkur fannst einnig ekki ástæða til, að verkamenn yrðu óánægðir með þetta, þó að þessi hlunnindi séu veitt fátækum námsmönnum, með tilliti til þess, að hér er aðeins um að ræða 13 menn. Ég legg svo til, að þessi brtt. verði samþ.