02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
Frsm. (Bergur Jónsson) :
Ég vil geta þess, að við bárum fram till. á þskj. 625 vegna þess, að okkur fannst þörf á að lækka tölu þeirra námsmanna, sem aðgang hefðu að þessari vinnu, úr ½ niður í allt að þriðjungi, með tilliti til annara starfsmanna. Ég vil minnast á eitt atriði í ræðu hv. þm. Ísaf., har sem hann sagði, að sá þm., sem upphaflega hefði flutt þessa brtt. við frv., — ég hygg, að hann hafi átt við hv. þm. S.-Þ. hafi með því komizt í ósamræmi við fyrri yfirlýsingar sínar um, að hann vildi takmarka tölu nemenda í framhaldsskólum. Aðsókn að þessum skólum er mjög mikil, og mér finnst ekkert ósamræmi í því, þó að þessi hv. þm. vilji sjá fyrir því, að þeir, sem komist þessa leið, geti tekið á sig hið dýra nám án þess að vera styrkþurfi vandamanna sinna.
Ég mun því halda fast við miðlunartill. meiri hl. n., þótt ég geti sætt mig við ákvæði frv. eins og þau eru nú.