02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Finnur Jónsson:
Í hinum upprunalegu till., hv. þm. S.-Þ. var svo ákveðið, að námsmenn skyldu allt að ¾ ganga fyrir vinnu í þeirri atvinnuaukningu, er myndi leiða af stækkun síldarverksmiðjunnar á Raufarhöfn. Ég vil nú ekki fara að vekja deilur út af þessu máli eða leiða asnann inn í herbúðirnar að því leyti. En þó vil ég geta þess, að ég hefi borið mig saman við framkvæmdarstjóra verksmiðjunnar um þetta mál og taldi hann það mjög varhugavert, að fjöldi þeirra námsmanna, er vinnu fengi við verksmiðjuna, yrði 1/3 allra verkamanna, er þar ynnu. Hann kvað það vera nauðsynlegt, að meiri hluti verkafólks við verksmiðjuna væri vanir verkamenn. Þá má og í þessu sambandi geta þess, að allflestir námsmenn fara burt í byrjun september, ef ekki á að rekast á hjá þeim vinna og nám. En það er hinsvegar augljóst. að óheppilegt er að missa 1,3–½ vinnuaflsins frá verksmiðjunni áður en veiðitíminn er útrunninn.
Ég benti á, að hættulegt væri fyrir námsmenn, ef farið væri að amast við þeim á veiðistöðunum, ef farið er að gera þeim áberandi ívilnanir um vinnu. Alstaðar á þessum stöðum, þar sem fyrirtæki þessi hafa verið stofnuð, eru þau bundin samningum við verkalýðsfélögin, og það er ástæða til að óttast, að kurr gæti komið upp milli hinna félagsbundnu verkamanna á vinnustaðnum og námsmanna. Ég get því ekki séð nokkur nýtileg rök fyrir því, að ákveða eigi tölu námsmanna við vinnu í verksmiðjunum með lögum frá Alþingi. Ég vil líka benda á óréttlætið í því að ákveða hlutfallið milli atvinnulausra menntamanna og verkamanna til helminga. Þetta er ranglátt bæði gagnvart fjölda verkamannanna og gagnvart þessari atvinnugrein. Hvers vegna má þá ekki eins ákveða sömu hlutfallstölu á skipum, við heyvinnu, vegavinnu, o. s. frv.? Það getur ekki orðið neitt stefnuskráratriði að ákveða, hve margt menntamanna og námsmanna eigi að fá vinnu við verksmiðjurnar. Það liggja engin skynsamleg rök að því að gera þetta að löggjafaratriði, þótt einhverjum þm. hafi dottið þetta í hug án þess að hafa skilning á því, sem um er að ræða.