02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Einar Olgeirsson:
Ég vil ekki láta þetta mál fara athugasemdalaust út úr deildinni frá minni hálfu. Því fer fjarri, að ég sé því mótfallinn, að ríkisstjórnin auki síldarverksmiðjurnar á Siglufirði og Raufarhöfn. En ég vil vekja athygli á því, sem gerzt hefir í sambandi við forsögu þessarar aukningar, Rauðkumálsins á Siglufirði. Stjórnin hefir sýnt sig vera mjög meðmælta byggingu síldarverksmiðju sem einkafyrirtæki. En gagnvart Siglufirði er farið illa að ráði sínu. Siglufjarðarbæ er varnað þess að koma sér upp síldarverksmiðju, er geti unnið úr 5000 málum síldar, enda þótt lánið til byggingarinnar væri fengið. Ríkisstj. hefir þarna beitt gerræði við Siglufjarðarbæ og notað vald sitt til að neita um heimild til lántökunnar og hindrað þannig hið mesta nauðsynjamál bæjarins. Svo framarlega sem Alþingi hefði staðið á verði gagnvart valdamönnunum í sambandi við þetta mál allt, þá hefði það þegar tekið málið til umræðu. Það væri æskilegt, að svo yrði gert við eldhúsumr., ef flokkar þeir, sem standa að stj., hindra þá ekki, að þær fari fram. Ég býst raunar við, að hlutaðeigandi ráðherra komi sér hjá að svara til saka í þessu máli. En ég vildi ekki láta þetta mál fara svo út úr deildinni, að ég lýsti því ekki, hvernig stjórnin kom í veg fyrir byggingu síldarverksmiðju á Siglufirði, þetta versta hneyksli, sem enn hefir komið upp á ferli núv. ríkisstjórnar. Það er hart að heyra talað um vandræði atvinnulífsins og að stjórnin sé reiðubúin til að auka atvinnuna í landinu og skipta henni réttlátlega, en á sama tíma er komið fyrir kattarnef stórkostlegu fyrirtæki, sem veitir fjölda manna vinnu og afvinnuvegunum erlendan gjaldeyri. Já, það er hart að þurfa að standa sjálfa ríkisstjórnina að slíku verki. En ástæðan fyrir þessu hermdarverki er sú, að fámenn klíka hefir náð tökunum á raunverulegu valdi yfir atvinnutækjum þjóðarinnar og að samvinnan er svo náin milli ríkisstj. og eigenda síldarverksmiðjanna. Á þetta vildi ég minnast áður en málið færi út úr þinginu.
Ég er sammála brtt. hv. þm. Ísaf. og ég vil ekki endurtaka rök hans. Ég álít ekki ástæðu til, meðan atvinnuleysi er eins mikið og nú, að setja sérstök lagafyrirmæli um að útiloka almenna verkamenn frá þeirri atvinnubót, sem frv. hefir í för með sér. Þó er það skiljanlegt, hvers vegna hv. þm. S.-Þ. kemur fram með þessi ákvæði. Svo framarlega sem verkalýðnum, þar sem hann fer með völd, hefði verið leyft að koma sér upp slíku fyrirtæki, ef Siglufjörður, sem stjórnað er af verkalýðsflokkunum, hefði fengið leyfi til að byggja síldarverksmiðjuna, þá skyldi koma fram till. sem þessi. En það kemur úr hörðustu átt, þegar þeir sömu menn, sem hafa varnað verkalýðnum þess að koma sér upp fyrirtækjum, skuli reyna að koma að lagaákvæðum, sem útiloka verkamenn frá atvinnutækjunum. Hvað nemendurna snertir, þá álít ég sízt of mikið, þótt þeim yrði séð fyrir vinnu af því opinbera. En hið opinbera verður að finna aðra leið til þess en þá, að skerða vinnu verkalýðsins og ætla að troða nemendum inn á kostnað verkamannavinnunnar. Þeir, sem bera umhyggju fyrir efnalitlum nemendum, verða að útvega þeim vinnu án þess að taka frá fátækum verkamönnum. Þeir, sem vilja sýna námsfólki umönnun, ættu að hafa það hugfast, að rausnarlegast, eðlilegast og sanngjarnast er að auka framlögin til nemendanna og hækka fjárframlög til verklegra framkvæmda og ætla nemendum sinn rétta hlut af þeirri vinnu, er við það skapast.