02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (2519)
143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.
*Einar Olgeirsson:
Að því er nemendur snertir komst hv. 1. þm. Skagf. að þeirri niðurstöðu, að nemendum úr verkamannastétt færi fækkandi. Orsakirnar til þessa liggja í því, að innganga í marga skóla er takmörkuð, og fátækt fólk brestur fé til að búa börn sín undir skólana. Fyrir þessa sök hefir yfirstéttin fengið forréttindi fyrir börn sín í eldri skólum landsins. Þetta eru ástæðurnar til, að börn verkalýðsstéttarinnar komast ekki í skóla. Það er þess vegna að snúa málinu við, þegar hv. 1. þm. Skagf. kennir verkalýðssamtökunum um erfiðleika fátækra námsmanna. Það eru þær takmarkanir, sem ríkisvaldið hefir sett á inngöngu í skólana, sem veldur þessum breytingum í félagslegum uppruna menntamanna, en ekki verkalýðsfélagsskapurinn. Versnandi afkoma verkalýðsstéttarinnar gerir henni ókleift að undirbúa börn sín til skólagöngu, svo að þau megi standast inntökuprófið. Sökin liggur hjá núverandi ríkisvaldi og ráðamönnum þess, er verkamenn eiga fáa unglinga í hinum æðri skólum landsins.
Hugsunarháttur hv. 1. þm. Skagf. er harla einkennilegur að því er þetta mál snertir. Hann talaði um það hjartfólgnum orðum, að tryggja þyrfti nemendum atvinnu. En þessi sami maður, sem vill tryggja nemendum atvinnu, heldur því fram og flytur frv. um það, að flytja skuli atvinnulausa verkamenn upp í sveit og láta þá vinna þar. Hvers vegna er nemendum meiri vorkunn en atvinnulausum verkamönnum, sem engin úrræði hafa, að fara upp í sveit sér til bjargar? Ef ætlazt er til, að verkamenn vinni fyrir 4–6 fjölskyldumeðlimum uppi í sveit, hvers vegna geta þá ekki einhleypir nemendur unnið þar líka fyrir sér?
Ég álít, að það, sem ríkið eigi fyrst og fremst að gera fyrir nemendurna, sé að opna skólana fyrir þá og gera þessum fátæku nemendum, sem þessir hv. þm. vilja bera fyrir brjósti, mögulegt að verða nemendur, og í öðru lagi að hafa sérstaka styrki handa þessum nemendum, það mikla, að fátækir nemendur geti verið í skóla, en sé ekki bægt frá því sökum efnaskorts. Það má líka af hálfu þess opinbera sjá til þess, að þeir fái vinnu, en það á ekki sérstaklega að lögbjóða, að þeir gangi fyrir um vinnu, sem fjölskyldumönnum veitir alls ekki af. Hinsvegar er af formælendum þessa máls gert allt of mikið úr því, hvað nemendum liggi sérstaklega á að fá þessa verksmiðjuvinnu, um leið og þeir gleyma, hvernig þúsundir verkamanna bíða eftir að fá vinnu. Nemendur eru ekki útilokaðir frá vegavinnu, enda hefir verið þar mikið af þeim. Sömuleiðis hafa þeir talsvert fengið vinnu á síldveiðiskipum. Þetta, sem þarna er um að ræða, er sérstök tegund vinnu. Vegna þess að þetta er stærsti atvinnureksturinn hér á landi, hafa verkalýðssamtökin orðið þar sterkust, og vegna þess að ákveðnum mönnum er illa við þau, mönnum, sem eru frumkvöðlar að þessari gr., vilja þeir höggva skarð þar í með því að taka menn í þessa vinnu án þess að verkalýðsfélögin geti haft nokkuð um það að segja. Ég veit ekki betur en að nemendur hafi fengið atvinnu þarna með samkomulagi við verkalýðsfélagið á Siglufirði. Hvaða ástæða er þá til að lögbjóða, að þeir eigi að ganga fyrir svo og svo mikilli vinnu þar á Raufarhöfn? Ég veit ekki betur en alltaf séu nokkuð margir nemendur í verkalýðsfélaginu og fái þar vinnu eins og allir aðrir félagar þess. Ég veit ekki betur en að verkafólkið hafi, þrátt fyrir mikla þörf á atvinnu, alltaf reynt að hliðra til, eftir því sem fært var. En það veit hver maður, að atvinnulausum fjölskyldumanni er ennþá meiri þörf á vinnu heldur en nemanda, þó að hann hafi þess einnig mikla þörf. Nei, þeir, sem álíta, að aðalúrræðið fyrir atvinnulausa fjölskyldumenn sé að senda þá upp í sveit, hvers vegna senda þeir ekki nemendurna upp í sveit og lofa fjölskyldumönnunum að fá þá betur borguðu vinnu við verksmiðjurnar? Ég kemst ekki hjá að álíta, þegar þessu er svo hart haldið fram af hálfu Framsfl., að ástæðan til þess sé sú, að þessum komandi embættismönnum ríkisins eigi að tryggja fríðindi frá upphafi til þess að geta haft nægileg áhrif á þeirra pólitísku skoðun, en útiloka verkamenn meira og meira frá vinnu og reyna að brjóta skörð í samtök þeirra og rýra vald samtaka þeirra. Umræður þær, sem fram hafa farið um þetta mál, gefa a. m. k. fullkomna ástæðu til þess, að menn láti sér detta í hug annað eins og þetta.