02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (2522)

143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.

*Finnur Jónsson:

Ég vil bara segja hv. 1. þm. Skagf. það, að mér er ekki kunnugt um, að neinn úr verksmiðjustj. eigi neinn aðstandanda í þessum skólaplássum, neina þá ef til vili einn af hans flokksmönnum. Þar er enginn, og hefir aldrei verið. En það ræður af líkum, að það er ekki hægt að taka fleiri en 10 menn í þessi nemendapláss, fyrst það er ákveðið, að þeir skuli vera 10, og þau rúm hafa ætíð verið fyllilega skipuð. En auk þeirra hafa venjulega verið teknir 4 menn, sem stundað hafa iðnfræðinám í verksmiðjum, til þess að hafa á hendi efnarannsóknir þá um leið. Þannig hafa starfað við ríkisverksmiðjuna umfram þessa 10 a. m. k. 4 menn síðasta ár.

Út af því, sem hann talaði um, að þessu væri ef til vill eitthvað misskipt, þá væri kannske rétt að flytja till. um, að þetta færi fram eftir úthlutun menntamálaráðs, eða að menntamálaráð yfir höfuð réði menn í síldarverksmiðjurnar hér á landi, hvort sem þeir væru skólagengnir eða ekki. Annars er það ekki verksmiðjustjórnin, sem hefir lagt á móti því, að þessi hlutföll yrðu, heldur forstjóri verksmiðjunnar, sem hefir hent á, að óhentugt sé að reka verksmiðjuna með óvönum mönnum, því að reynslan er sú um skólamenn, að jafnan losnar um helmingur af þeim skólaplássum, sem eru við verksmiðjurnar á Siglufirði, svo að ef þar eru 10 menn, þá er þar venjulega skipt um helminginn á hverju ári.

Ég get vel tekið undir með hv. l. þm. Skagf. um hans kveinstafi vegna þeirra fátæku námsmanna, en ég vil um leið minna bæði þennan hv. þm. og aðra hv. þm. á, að það eru líka til kveinstafir frá atvinnulausum verkamönnum, og þeir eru kannske enn sárari en frá námsmönnunum, þó að þeir láti þá ekki heyrast hér í þingsalnum.