23.12.1939
Efri deild: 93. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1260 í B-deild Alþingistíðinda. (2541)
164. mál, fiskimálanefnd
*Erlendur Þorsteinsson:
Ég vil ekki, að þetta frv. fari héðan út úr deildinni án þess að ég segi um það nokkur orð. Eins og skýrt hefir verið frá, er með þessu frv. farið fram á það, að breyta einni gr. laganna þannig, að í stað 7 manna nefndar, sem nú er, komi 3 manna nefnd, og að þessi 3 manna nefnd verði skipuð eftir tilnefningu þriggja stærstu þingflokkanna. Nú er nefndin þannig skipuð, að einn er skipaður af atvinnumálaráðherra, einn af Alþýðusambandi Íslands, einn af Félagi botnvörpuskipaeigenda, einn af Landsbanka Íslands, einn af Útvegsbanka Íslands h. f., einn af Sambandi ísl. samvinnufélaga og einn af Fiskifélagi Íslands, og virðist mér. að með þessum lögum, eins og þau eru nú, sé svo frá gengið, að allir aðilar. sem hafa þarna einhverra hagsmuna að gæta, hafi þar fulltrúa. Um fiskimálanefnd stóð styr, sérstaklega 2 fyrstu árin, sem hún starfaði, en eftir að það fór að sýna sig, að nefndin hafði nóg verkefni að vinna og gerði margt vel, hefir sá styr fallið niður, og ekki sízt 2 síðustu árin, eftir að Júlíus Guðmundsson varð form. n., og hygg ég, að allir séu sammála um, að n. hafi unnið gott starf og hafi haft góða forustu. Með því að breyta þessari nefnd í þriggja manna nefnd, verða einhverjir af þeim, sem fyrir eru, að fara úr henni. Veit ég ekki, hverjir það verða, en hefi heyrt, að núv. formaður, sem hefir unnið gott starf, eigi ekki að vera þar áfram, heldur eigi að koma þar maður, sem að vísu er í n., en ekki hann.
Nú er það alveg vitanlegt, að hvort sem það er nefndin eða stjórn einhvers félags, sem fer með þessi mál, fer um starfið eftir því, hvaða menn hafa með það að gera, og ef menn eru sammála um það, að þessi nefnd hafi unnið gott starf undir forustu þessa manns, get ég ekki skilið, hvers vegna liggur svona mikið á að koma þessum manni burt.
Atvmrh. tók fram, að þetta væri ekki nema einn áfanginn að því, sem hann hefði hugsað sér. að leggja nefndina niður. Nú væri sjálfsagt gott, ef þessir menn, sem fiskinn eiga, gætu komið sér saman um að stofna samlag til þess að selja fiskinn. Það væri ágætt að koma því þannig fyrir, að ekki væri hver að pukra fyrir sig við að selja frosna fiskinn erlendis. Það er miklu sterkara að hafa allar þessar afurðir á einni hendi. En ég get ekki séð ástæðu til þess að fara að leggja niður þessa nefnd, þótt hæstv. atvmrh. álíti líklegt, að þetta samlag komist á. Fiskimálanefnd hefir önnur verkefni en söluna. Hún hefir unnið mikið að því að kynna þessa vöru og finna nýja markaði, og úr því hún hefir unnið þessi störf, hefir hún komizt inn á það að verða nokkurskonar sölumiðstöð fyrir þessar afurðir, en að það liggi svo mikið á nú að eyðileggja störf n. með því að breyta þessum lögum, það fæ ég ekki séð.
Ég held, að ég vilji ekki að svo stöddu segja meira um þetta, en verð að segja, að mér þykir það harla einkennilegt, a. m. k. um Framsfl., sem stóð sérstaklega að afgreiðslu þessa máls, að sá flokkur skuli nú snúast á móti því og gera sitt til að eyðileggja það starf, sem þarna er unnið.