03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (2565)

164. mál, fiskimálanefnd

*Atvmrh. (Ólafur Thors):

Ég vil aðeins segja nokkur orð út af ræðu hv. 6. landsk. Ég vil taka það fram, að það er ekkert, sem freistar mín til að gera þessa n. óvinsæla. Ég kæri mig ekki um að til þess komi, að ég þurfi á nokkurn hátt að skerða valdsvið n. En færi það svo, að ég fengi vald til þess að hafa einhver afskipti af n. og að hún yrði óstarfhæf, þá mundi ég gera annað tveggja, gera skipulagsbreytingu á n. eða breyta tekjum hennar.