21.04.1939
Efri deild: 45. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (257)

64. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga

*Frsm. (Magnús Gíslason) :

Viðvíkjandi því, sem hv. 5. landsk. sagði, að einn maður hefði verið settur til þess að líta eftir framkvæmd laganna frá 1937, vil ég taka fram, að það hefir aðeins verið falið einum af starfsmönnum stjórnarráðsins, en hann er ekki sérstaklega skipaður (ÞÞ: Fær sérstaka greiðslu fyrir). Það getur verið, en þar er ekki um neinn sérstakan embættismann að ræða.

N. þótti það að vísu talsverður agnúi, að þetta kostar fé. En í það verður ekki horft, ef hið nýja skipulag gæti orðið til verulegra bóta. Hér er ekki um neitt lítilræði að tala. Því að atvinnubótaféð t. d. er svo gífurleg upphæð alls, að engum getur staðið á sama um, hvernig það er notað, og þarf mikið eftirlit með því, að það verði ekki að eyðslueyri.