04.01.1940
Neðri deild: 102. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)

164. mál, fiskimálanefnd

*Bergur Jónsson:

Hæstv. atvmrh. hélt því fram, að sú brtt., sem hv. 6. landsk. hefir borið hér fram, væri álíka óskyld frv. og gr. í „höggorminum“. Það, sem hefir verið álitið einstakt við „höggorminn“, er það, — a. m. k. þar til fjhn. var búin að ganga frá því frv., — að þar var ekki einu sinni neitt lágmarkssamræmi á milli fyrirsagnar frv. og frv. sjálfs. Það er venjulega þannig, þegar frv. eru borin upp í þinginu, að frv. er fallið, ef 1. gr. frv. fellur. Nú er ekki hægt að segja þetta um „höggorminn“, vegna þess, að frvgr. voru sín úr hverri áttinni og sín um hvert efni, en það verður þó ekki sagt um brtt. hv. 6. landsk., vegna þess að jafnframt því, sem hann hefir borið fram brtt. um að bæta annari n. inn í frv., sem fyrir liggur, þá hefir hann og breytt fyrirsögn frv. þannig, að hún hljóðar um báðar þessar n., bæði fiskimálan. og mjólkursölun. Að því leyti er ekkert hægt að kvarta undan því, að málið sé ekki fullkomlega þinglega fram borið.

Þá er annað atriði, sem líka er í fullkomnu samræmi við rétta hugsun í frv., sem hér liggur fyrir um fiskimálan., útflutning á fiski, hagnýtingu markaða o. fl., að fiskimálan., í stað þess að vera tilnefnd af 7 aðilum innan þjóðfélagsins, skuli tilnefnd af 3 stærstu þingflokkunum, alveg á sama hátt og brtt. hv. 6 landsk. fer fram á, að mjólkursölun. sé breytt þannig, að 3 stærstu þingflokkarnir skipi sinn fulltrúann hver í n. Að þessu leyti er alls ekki hægt að segja, að flm. brtt. hafi á nokkurn hátt farið út fyrir það svið, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Það er alveg rökrétt að setja inn í þetta breyt. á annari n., sem einnig hefir verið skipuð af hinum og þessum aðilum innan þjóðfélagsins, svo að hún verði einnig skipuð af þremur stærstu þingflokkunum. Að þessu leyti er brtt. alveg rökrétt. En að því er efni málsins snertir, þá vil ég taka það fram, að ég er á móti báðum breytingunum eins og gert er ráð fyrir þeim í frv. og brtt. Ég álít ekki, að það sé til neinna bóta að breyta fiskimálan. þannig, að hún sé einungis skipuð 3 mönnum, sem skipaðir séu af 3 stærstu þingflokkunum, sem í rauninni verður heldur ekki samræmt við þingræði, því mismunurinn á milli þingflokkanna er svo mikill.

Ég vil ekki halda því fram, að hv. 6. landsk. sé með neitt alvöruleysi í flutningi þessarar till., vegna þess, að hann hefir dregið alveg rökréttar ályktanir af því frv., sem fyrir liggur, án þess þó, að gert sé ráð fyrir, að hann sé sammála frv. En hitt er mjög eðlilegt, að honum finnist rétt að breyta mjólkursölun. á sama hátt og fiskimálan., ef hætta á að skipa þessa n. af þeim aðilum í þjóðfélaginu, sem taldir eru að hafa þar hagsmuni að gæta, og í stað þess fara þingflokkarnir að skipa í n., Í því tilfelli e,. ekki frekar ástæða til að áfellast till. hv. 6. landsk. en frv., en ég vil fyrir mitt leyti leggja til, að þetta verði fellt hvorutveggja.