28.02.1939
Neðri deild: 9. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1283 í B-deild Alþingistíðinda. (2585)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Héðinn Valdimarsson:
Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., sem hér eru inni, hvort þinginu muni ekki verða gefin skýrsla um þá samninga, sem hafa verið að fara fram við Þýzkaland og Noreg, annaðhvort á opnum eða lokuðum fundi.