17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (2596)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Það eru fjórar fyrirspurnir, sem hv. 5. þm. Reykv. hefir beðið mig að svara. Fyrsta fyrirspurn hans er um það, hvort sá leiðangur Þjóðverja, sem talað var um í útvarpinu í gærkvöldi, hefði fengið leyfi íslenzku ríkisstj. til þess að gera hér landmælingar. Ég ætla að svara þessari fyrirspurn á þá leið, að ég hafði ekki heyrt neitt getið um þennan leiðangur. fyrr en skýrt var frá honum í útvarpinu í gærkvöldi, sem er engin sönnun. Hvort sem þessi frétt er að öllu leyti rétt eða ekki, þá hefir alls ekki verið leitað til íslenzku ríkisstj. um leyfi til slíkra landmælinga.

Um þá fyrirspurn hv. 5. þm. Reykv., sem áhrærir flugferðir hingað til lands. og þá Þjóðverja, sem skýrt var frá í útvarpinu, að myndu koma hingað, er það að segja, að það mál stendur þannig af sér, að íslenzka ríkisstj. hefir fyrir hálfum mánuði eða um það bil fengið tilkynningu um það frá fulltrúa Þýzkalands hér í Reykjavík, að þessir menn myndu koma hingað til þess að ræða um flugferðir hingað að sumri. Þetta mun byggjast á því að árið 1930 var stofnað hér flugfélag, aðallega með aðstoð þýzka flugfélagsins Luft-Hansa, og þá var svo ákveðið. að ef Flugfélag Íslands yrði við liði þar til 1. apríl 1940, skyldi þetta þýzka flugfélag fá beztu kjara réttindi. En þegar Flugfélag Íslands var lagt niður, hefði þessi réttur átt að réttu lagi að falla burt um leið. En sá ráðh., sem fór með þessi mál árið 1932, þegar Flugfélag Íslands var lagt niður, framlengdi þennan rétt til Luft-Hansa til 1. apríl 1940, og við það hefir setið síðan, eins og auðvitað er. En á árinn 1937 var, eins og Alþ. er kunnugt, amerísku flugfélagi veitt leyfi til þess að hafa flugferðir á hendi frá Íslandi og til Íslands með ákveðnum skilyrðum. En þau skilyrði voru ekki uppfyllt, og er því sá samningur fallinn úr gildi. Beztu kjara réttindi eru fólgin í því, að fá öll hin sömu réttindi sem öðrum eru veitt í landinn. Nú hefir það atvikazt þannig, að ekkert erlent flugfélag hefir öðlazt hér nein réttindi til flugs. Gamla Flugfélag Íslands. sem Luft-Hansa var riðið við, er úr sögunni fyrir löngu.

Þó að Luft-Hansa fengi beztu kjara réttindin framlengd til 1940, og hefði því fengið hér réttindi, ef nokkuð hefði orðið úr réttindum til Pan American — en það félag uppfyllti ekki hin settu skilyrði, og hefir þess vegna ekki öðlazt nein flugréttindi hér, — þá leiðir af því, að þýzka félagið hefir ekki heldur getað öðlazt nein réttindi. En í bréfinu frá fulltrúa Þýzkalands til íslenzku stj. er bent á það, að Þjóðverjar vilji nota sér þau forréttindi, sem þeim hafi verið veitt til flugferða til og frá Íslandi.

Íslenzka ríkisstj. álítur, að hér sé hvorki um leyfi né forréttindi til flugferða að ræða, en vitanlega verðum við að ræða það mál við þá þýzku flugmenn, sem hingað koma, eins og við aðra fulltrúa frá vinveittum þjóðum.

Um fjórða atriðið, sem hv. 5. þm. Reykv. spurði um, hvort nokkrar ráðstafanir yrðu gerðar af hálfu ríkisstj. til að taka móti þýzka herskipinu Emden, er það að segja, að vitanlega hafa engar ráðstafanir verið gerðar til að taka öðruvísi móti því en öðrum herskipum, sem hingað koma til landsins, enda er það engin nýlunda, að herskip komi hingað. Hingað koma venjulega á hverju ári mörg herskip frá Englandi og Þýzkalandi, til þess að líta eftir fiskiflota þessara þjóða hér við land og jafnframt í kurteisisheimsókn. Þannig hefir það gengið til undanfarin ár. Það, sem hv. 5. þm. Reykv. á við, þar sem hann talar um hergöngu þýzkra sjóliða á götum Reykjavíkur síðastl. ár, mun hafa verið það, að þeim var boðið að skoða Sundhöllina, og þeir fóru í flokk þangað upp eftir undir eftirliti yfirmanna. En ég geri ekki ráð fyrir, að þess þurfi við nú.

Að endingu spurði hv. 5. þm. Reykv. um það, hvort ríkisstj. hefði gert ráðstafanir til þess, að herskip annara þjóða yrðu á Reykjavíkurhöfn á sama tíma sem Emden verður hér. En að sjálfsögðu hefir ríkisstj. engar ráðstafanir gert í þá átt, og um slíkt þarf tæpast að spyrja. Eins og ég sagði áðan, er það alls ekki óvenjulegt, að herskip komi hingað í kurteisisheimsóknir, og þegar herskip kemur hingað í slíka heimsókn frá þjóð sem okkur er vinveitt, kemur ekki til nokkurra mála að biðja aðrar þjóðir að senda hingað herskip um sama leyti.