17.03.1939
Neðri deild: 21. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (2597)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Einar Olgeirsson:
Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir þessi svör, svo langt sem þau ná. Fyrst ætla ég að minnast á þýzka rannsóknarleiðangurinn. Ýmsir slíkir leiðangrar hafa farið um Ísland á undanförnum árum, án þess að biðja nokkur yfirvöld um leyfi til þess. En slíkt er ekki viðurkvæmilegt fyrir sjálfstæða þjóð.
Því myndi ekki verða tekið fegins hendi, ef við Íslendingar sendum slíka leiðangra til Þýzkalands. Mér er nær að halda, að þessum mönnum hafi jafnvel verið sagt af þýzka sendiherranum í Kaupmannahöfn að fara hingað án þess að fá neitt leyfi, því að íslenzka stj. myndi ekki þora annað en að láta undan. Eindreginn vilji Íslendinga í þessu máli hlýtur að vera sá, að ríkisstj. svari þessum mönnum á þá leið, að þeim verði bannað að njósna hér, mæla landið. hafa hér sendistöðvar o. s. frv. Í öðru lagi, viðvíkjandi þýzka flugfélaginu, þykir mér mikið varið í þær upplýsingar hæstv. forsrh., sem hann gaf í ræðu sinni. Í fyrsta lagi það, að þýzki ræðismaðurinn 4 Reykjavík hefði sent ríkisstj. tilkynningu um það, að þessir flugmenn kæmu. Ekki hefir svo mikið verið haft við, að við höfum verið spurðir, hvort við viljum ræða neitt við þessa útsendara þýzku stj., heldur er tilkynnt, að þeir komi hingað til að heimta rétt, sem í raun og veru er ekki til. En verði nú samt spurt um þau réttindi, sem Luft-Hansa voru veitt 1930, og féllu niður þegar Flugfélag Íslands var ekki lengur til er spurningin sú, til hverra sá ráðh., sem fór með völd árið 1932, hafi framlengt þann rétt.
Þá vil ég ennfremur spyrja hæstv. forsrh. um, hvort ég hafi ekki skilið það rétt, að Þjóðverjar heimtuðu hér á landi forréttindi viðvíkjandi lendingarstöðum fyrir flugvélar, og hvort hæstv. ríkisstj. hafi svarað því þannig, að þessi réttur sé ekki til. En í sömu andránni og hæstv. forsrh. sleppir orðinu um það, að hæstv. ríkisstj. neitar því. að þessi réttur sé til, segir hæstv. forsrh., að Þjóðverjar séu að koma hingað til þess að semja um lendingarstaði. Ég vil þá spyrja: Er nokkurt samband á milli komu Emdens hingað nú í lok mánaðarins og komu þessarar flugsveitar, sem kemur hingað með Dronning Alexandrine, og kröfu Þjóðverja um flugvelli hér á landi, sem þeir. eftir vafalaust réttum skilningi hæstv. ríkisstj. eiga alls ekki neitt tilkall til.
Ef svo er, hygg ég, að full þörf sé, að hæstv. alþingi athugi vel málið, og hæstv. ríkisstj. tryggi sér vilja þingsins á bak við sig viðvíkjandi þeim svörum, sem hún kann að þurfa að gefa, þegar Emden kemur í lok mánaðarins og ber fram sínar kröfur.
Ég hygg. að flestum sé það ljóst — og mér skilst, að hæstv. ríkisstj. sé það líka ljóst — að réttur til lendingarstaða hér á landi fyrir þýzkar flugvélar þýði það sama fyrir okkur Íslendinga eins og farið var fram á hér fyrir 900 árum, þegar erlendur konungur bað um Grímsey.
Þá vil ég ennfremur spyrja hæstv. forsrh., hvort það sé rétt, að þessir flugmenn séu ekki frá borgaralegu flugfélagi, heldur séu þeir S.S.-menn, sem heyri undir stjórn Himmlers, sem er beinlínis pólitískt lögreglufélag í Þýzkalandi. Þá vil ég í þessu sambandi spyrja hæstv . forsrh., hvort skipt verði um konsúl og hvort von sé í sambandi við þessa heimsókn á öðrum konsúl, sem einnig heyri til S.S.-sveita Himmlers, með þeirri afstöðubreytingu, sem menn gæti grunað, að væri í sambandi við það.
Þá var það viðvíkjandi marseringunum hér um göturnar. Ég man ekki betur þegar „matrosarnir“ marseruðu hér í sumar um göturnar, en að þeir væru vopnaðir. Ég vildi mælast til þess. að hæstv. forsrh. gæfi yfirlýsingu um það, að þeim yrði ekki leyfðar neinar hópgöngur hér um göturnar í þetta skipti.
Þá vildi ég að síðustu spyrja hæstv. forsrh., hvort koma Emden hingað — sem mun eiga að vera hér um sex vikna tíma — standi nokkuð í sambandi við það, að Þýzkaland hafi gert kröfur í sambandi við milliríkjasamninga um friðun Faxaflóa, eða hvort þessir 615 vopnuðu menn í Emden eigi bara að líta eftir þýzkum fiskiskipum hér.
Viðvíkjandi svari hæstv. forsrh. við fyrirspurn minni um ráðstafanir, sem e. t. v. hafa verið gerðar viðvíkjandi komu Emden, vil ég taka það fram, að mér finnst eðlilegt, að engin ríkisstj. gefi það upp, ef hún hefði gert slíkar ráðstafanir. En eftir þeim fréttum sem nú berast að utan úr Evrópu, býst ég við, að það sé vafalaust vilji þingsins, að slíkar ráðstafanir verði gerðar, jafnvel þó að hæstv. ríkisstj. lýsi engu yfir um slíkt.