23.03.1939
Neðri deild: 25. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1297 í B-deild Alþingistíðinda. (2609)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Út af þessum upplýsingum, sem þessi hv. þm. hefir komið fram með, og þar sem hann hefir lesið upp skeyti, sem hann segir. að Þjóðviljinn hafi sent, þá er sérstök ástæða til að vekja athygli á því, að hér er beinlínis farið með ósannindi. og því miður fyrir þá, sem að þessu skeyti standa, er hægt að færa fram órækar sannanir fyrir, að þarna er farið með vísvitandi ósannindi. Þegar fyrirspurninni var beint til mín um þennan þýzka leiðangur, sem átti að koma, þá sagði ég, að það yrði tekið til athugunar, þegar nefndin kæmi hingað. og það fór ég ekki í neinar grafgötur með, og þetta veit ég, að hv. þdm. hafa heyrt. En nú skulum við segja, að hv. þm. hafi misheyrzt og þess vegna hafi skeytið verið sent eins og það var. En því er ekki til að dreifa, vegna þess að þegar ég tók til máls aftur, spurði ég, hvernig á því stæði. að hv. þm. setti Emden í samband við komu þessara sendimanna. því að Emden kæmi því ekkert við og ekkert samband væri á milli Emden og sendimannanna. Skipið kæmi til eftirlits, en hinir til að semja. Þess vegna er það svo, að hafi verið um misheyrn að ræða þá, var hún samstundis leiðrétt. Þess vegna er þessi fregn send sem ósannindi og á móti betri vitund. Ég ætla ekki að fara mörgum fleiri orðum um þetta hér, en ég get fullyrt og skýrt hv. þd. frá því, að þessi fregn, sem þannig hefir borizt til útlanda. hefir þegar skaðað Ísland verulega. Ósannar fregnir, sem eru sendar héðan til útlanda. geta aldrei gert annað en að skaða Ísland. Ég get heldur tæplega skilið, að það sé til öryggis fyrir Ísland, að danski kommúnistaflokkurinn sé að birta fregnir eins og þessar.

Viðvíkjandi því, sem þessi hv. þm. spurði, hvað gengi með þjóðstjórn, ætla ég að lýsa því yfir, að ég mun ekki svara fyrirspurnum þessa hv. þm., meðan hann ekki biður afsökunar á framkomu sinni. Meðan þannig er farið með þau svör, sem gefin eru, er full ástæða til að svara ekki þm., fyrr en hann hefir beðið afsökunar á þessari framkomu.