22.04.1939
Efri deild: 46. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
64. mál, tekjur bæjar- og sveitarfélaga
*Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég veit ekki, hvort búið er að útbýta brtt. við frv. frá mér á þskj. 205. Hún er víst ekki komin fram ennþá. Hæstv. forseti benti á það hér í hv. deild, að ekki væri viðkunnanlegt í frv. því, sem fara á að samþ., að atvmrh. skuti ætlað að skipa trúnaðarmenn þá, sem þar ræðir um, þar sem vitanlegt er, að félagsmrh. á að framkvæma þetta. Nú er það kunnugt, að félagsmrh. er þegar kominn. En ef frv. yrði samþ. eins og það er orðað, þá ætti þetta mál að heyra undir núverandi hæstv. atvmrh., sem er Ólafur Thors, en ekki hæstv. félagsmrh. Stefán Jóh. Stefánsson. Af þessum ástæðum vildi ég koma með þessa brtt., því að það er áferðarfallegra að afgr. frv. þannig.
Svo er annað atriði, sem ég vildi minnast á. ofurlítil efnisbreyting. Í frv. segir, að atvmrh. sé heimilt að skipa trúnaðarmenn í hverjum landsfjórðungi, en eftir minni brtt. er þetta því aðeins heimilt, að nauðsynlegt þyki, og eins er það tekið fram, að þetta megi aðeins gera um stundarsakir, og megi þetta ekki skoðast sem ævistarf. Og eftir frv. er ekki ákveðin tala þessara trúnaðarmanna. en í brtt. er tekið fram, að ekki skuli vera fleiri en einn í hverjum landsfjórðungi. Ég tel t. d. ekki nauðsynlegt að hafa slíka menn í Norðlendingafjórðungi eða Sunnlendingafjórðungi, en a. m. k. ætti ekki að ráða fleiri en þarf.
Ég geri ráð fyrir, að þeir hætti störfum strax og verkefni þeirra er lokið, og einnig, að fjvn. hafi hér hönd í bagga, því að hún verður raunverulega að leggja til á frv., hvað skuli leggja til þessara mála. Ég hefi tiltekið árstíma sem hámarkstíma, sem þessir menn megi starfa án sérstaks samþykkis fjvn., af því að n. kemur saman einu sinni á ári. Ég sé ekki, að þeir, sem ekki eru með því, að þetta sé haft svona, geti yfirleitt fylgt þessu frv.