23.03.1939
Neðri deild: 25. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1309 í B-deild Alþingistíðinda. (2619)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Ólafur Thors:

Ég skal fúslega viðurkenna, að það er rétt hjá hæstv. forseta, að þessar umr. hafa farið víðar en æskilegt er, enda hygg ég, að hæstv. forseti hafi nú beint þeim ákúrum þangað, sem þær eiga heima. Ég skal því á engan hátt gerast brotlegur með því að fara að rifja upp öll hin gömlu ósannindi kommúnista, sem hv. 5. þm. Reykv. tók upp í ræðu sinni, eins og t. d. um Gismondisamninginn, Spánarmálin o. fl.

Ég verð að viðurkenna, að sum þau ummæli sem féllu hjá hv. 5. þm. Reykv., eru þannig vaxin, að ég veigra mér við að taka þau upp, því það yrði aðeins til að vekja á þeim aukna athygli, sem ég tel mjög óheppilegt. Þó má segja um niðurlag síðustu ræðu hans, sem var ádeila gegn stjórnarstefnu viss ríkis, að heimfæra hefði mátt hana upp á stjórnarstefnu þess ríkis, sem hann starfar undir, þ. e. Rússlands, þar sem enginn maður hefir skoðana- eða atvinnufrelsi og frelsi einstaklingsins eru settar þrengri skorður en nokkurstaðar þekkist annarstaðar, og þeir, sem grunaðir eru um að hafa aðrar skoðanir en ríkisvaldið, verða að lúta þeirri reglu, að öxin og jörðin geymi þá bezt.

Meiri afskipti mun ég svo ekki hafa af hans ræðu.

Mig undrar, að maður eins og hv. 3. þm. Reykv. sem er skýrt hugsandi, skuli vera svo afarslysinn að segja frá því, að hinn íslenzki svokallaði Sósíalistafl. sé jafnvinveittur sósíalista- og kommúnistaflokkum nágrannalandanna. Samt vita allir hv. þdm., að t. d. í Danmörku er hvergi skarpari andstaða í stjórnmálum en einmitt á milli Sósíal- og Kommúnistaflokksins, en svo sprettur hér upp viðrini, sem er kallaður íslenzkur Sósíalistaflokkur og er báðum þessum flokkum jafnvinveittur.

Mér þykir gott, að hv. þm. hefir viðurkennt, að Alþýðuflokkurinn hefir þegið þessar gýligjafir frá Dönum, sem hann hefir þó oft neitað, fyrst 20 þús. kr. og síðar 25 þús. Það er lán fyrir þennan hv. þm., að hann er kominn úr þeim flokki, áður en hann er farinn að taka 200 þús. kr. lán það, sem nú er á döfinni.

Um það, að Morgunblaðið hafi þegið styrk frá Dönum, er það að segja, að það er tilhæfulaust, það hefir aldrei þegið neinn slíkan styrk, beint eða óbeint. E. t. v. teldi hv. þm. það styrk frá Dönum, ef ég hefði styrkt Morgunblaðið, en það hefi ég ekki gert, því miður. Morgunblaðið, hefir ætíð staðið á verði í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og barizt þar fremst í fylkingu.

Ég vil ekki fara að rekja upp, hvað gerðist í sambandi við norsku samningana 1932, að öðru leyti en því, að við, sem sömdum fyrir hönd ríkisstj. Íslands, höfðum skuldbundið okkur um þagnarheit um vissan tíma um viss mál. Þessi hv. þm. fékk þá tækifæri til, sem trúnaðarmaður vegna stöðu sinnar í utanríkismálanefnd, að sjá þessa samninga, og notaði þá trúnaðarstöðu sína til þess að svíkja það heit, sem við höfðum gefið erlendu ríki. Ég veit, að allir hv. þm., og þá eins hv. 3. þm. Reykv., vita, að hjá öllum þjóðum hvílir nokkur leynd á mörgum þáttum utanríkismála þeirra, og telur sérhver þjóð hag sínum bezt borgið með því. Jafnmargfróður maður og hv. 3. þm. Reykv. veit þetta vel, þótt hann vilji ekki draga af því réttar ályktanir, hvorki í þessu máli né tilfellum, sem ég hefi bent á.

Ég skal ljúka ræðu minni með því, að þótt hér liggi fyrir skeyti, sem sagt er að sé skeyti það, sem kommúnistar sendu, tek ég það ekki sem algilda sönnun fyrir því, að afritið sé ein, og skeytið, sem sent var. En þó er í þessu skeyti, sem hér liggur fyrir, staðfest allt það, sem ég og hæstv. forsrh. höfum borið á kommúnista. Hér stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Olgeirsson interpellerede í dag paa sosialistpartiets vegne althinget om tyske flyvere og emdens forestaaende besög. Statsministeren oplyste, at tyskerne forlanger landingspladser for flyvemaskiner paa grund af gamle kontrakter om mestbegunstigelse, men regeringen mener tyskerne kan ikke forlange disse rettigheder, da andre nationer heller ikke har deny men herom vil der forhandles naar emden kommer, sagde ministeren uforvarende, skönt flyverne kommer med dronning alexandrine. Olgeirsson fremhævende, at Islenderne ikke vil give tyskerne landingspladser og venter at regeringen holder fast paa det standpunkt.“ — Hvað er hér verið að draga fram? Að forsrh. Íslands hafi svarað fyrirspurninni hér á Alþingi á þann hátt, að samningar um þetta atriði yrðu gerðir þegar Emden kæmi, enda þótt mennirnir, sem semja ættu kæmu með „Drottningunni“. Hv. 3. þm. Reykvíkinga er að reyna að telja umheiminum trú um, að forsætisráðherra hafi lýst því yfir, að þótt nefnd kæmi frá vissu félagi — Luft-Hansa — til að semja um flugvélalendingastaði, sem það þættist eiga rétt til á Íslandi, þá semji forsrh. ekki við þá, heldur við þýzka hervaldið, þegar Emden komi. Það er ekki hægt að blæfalsa meir það, sem fram fór hér á Alþingi, en eins og hér er gert í afritinu af þessu skeyti.

Ég vil, að það sé þeim fast í minni, sem hér hlýða á, að forsrh. hefir lýst því yfir, að kommúnistar hafi vísvitandi rangfært sín ummæli og skaðað með því þjóðina, og að hann telji, að slík ummæli megi ekki eiga sér stað og að hann muni reyna að fá íslenzkum lögum breytt, svo slíkt verði refsivert. Mun ég styðja hann við þá lagasetningu.