09.12.1939
Efri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (2636)

Afgreiðsla mála úr nefndum

forsrh. (Hermann Jónasson) :

Vegna þess að nú hafa legið alllengi hjá allshn. tvö frv., sem ég ber fram, sem sé frv. til l. um dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimtu o. fl. í Reykjavík, og frv. til l. um breyt. á l. nr. 92 19. júní 1933, um lögreglumenn og mig er farið að lengja eftir þeim, vildi ég leyfa mér að spyrjast fyrir um, hvernig gangi með þau, því að það getur tafið störf þingsins, ef þau koma ekki bráðlega frá allshn.