20.12.1939
Efri deild: 89. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)
Afgreiðsla mála úr nefndum
Bernharð Stefánsson:
Fjhn. hefir sinnt þessu máli, sem um er spurt, mjög fljótt, eftir að það kom til n., því að eftir að því var vísað til n. var það sent til stjórnar trygginganna til umsagnar, og ekki eru nema fáir dagar síðan n. barst svar hennar. En n. hefir haft ýmsu að sinna og ekki getað komið því við að taka þetta mál fyrir til afgreiðslu enn. En ég a. m. k. sem formaður n. hefi í hyggju, og það kannske strax í dag að taka þetta mál fyrir á nefndarfundi. (SAO: Ég mun láta mér það nægja, ef ég fæ eitthvað að sjá).