07.03.1939
Efri deild: 12. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (2645)
Minning látinna manna
forseti (EÁrna) :
Áður en tekið verður til fundarstarfa að þessu sinni, vil ég minnast nokkrum orðum nýlátins merkismanns, er átti
sæti á Alþingi um langt skeið, alls á 21 þingi, og lengst af í efri deild, eða á 17 þingum hér í deildinni. Þessi maður er Guðjón Guðlaugsson, áður þingmaður Strandamanna og síðan landskjörinn þingmaður. Hann andaðist hér í bænum í gær.
Guðjón Guðlaugsson fæddist 13. desember 1857 að Skarði á Skarðsströnd, var af alþ.-fólki kominn, sonur Guðlaugs Jónssonar lausamanns og Bjargar Tómasdóttur bónda í Galtardal Jónssonar. Á unglingsárum sínum stundaði Guðjón sveitavinnu og sjóróðra. Innan við tvítugt naut hann um 2 mánaða skeið kennslu í unglingaskóla, er Torfi Bjarnason, síðar í Ólafsdal, hélt uppi um skeið að Hvoli í Saurbæ. Réðst hann skömmu síðar að Laugabóli við Ísafjarðardjúp, til Halldórs Jónssonar búfræðings, síðar bónda á Rauðamýri, og naut hjá honum tilsagnar í búfræði og jarðyrkju. Veturinn 1880–1881 dvaldi hann í Danmörku, á búgarði á Langalandi og viðar, við búfræðinám. Þegar heim kom, hafði hann á hendi um skeið jarðabótastörf fyrir bændur á Ströndum. Vorið 1883 reisti hann bú að Hvalsá í Steingrímsfirði og bjó þar í 5 ár, þá flutti hann bú sitt að Ljúfustöðum í Kollafirði og bjó þar til ársins 1902, og síðan að Kleifum í Steingrímsfirði til 1907. Verzlunarfélag Dalasýslu tók fyrr einnig til Stranda, og átti Guðjón þátt í stjórn þess félags 1892–1899. er Strandamenn gengu úr félaginu og stofnuðu sjálfir kaupfélag, Verzlunarfélag Steingrímsfjarðar. Var Guðjón formaður þess frá upphafi allt til 1919, er hann fluttist burt úr sýslunni til Reykjavíkur. Árið 1907 brá Guðjón búi og fluttist til Hólmavíkur til þess að gefa sig allan við stjórn kaupfélagsins. Á þessum árum hlóðust á Guðjón margvísleg störf. Hreppstjóri var hann 1887–1902 og 1916–1919. Í hreppsnefnd átti hann sæti nær óslitið frá 1884 til 1919, og var lengst af oddviti hennar. Frá 1917 til 1919 var hann formaður fasteignanefndar Strandasýslu. Strandamenn kusu hann á þing 1893, og átti hann þar sæti óslitið til 1907. Við kosningarnar 1908 féll hann sem margir aðrir rótgrónir þingmenn, er kosið var um sambandslagafrumvarp millilandanefndarinnar frá 1907, en hlaut kosningu af nýju 1911 og sat á þingunum 1912–1913. Landskjörinn þingmaður var hann frá 1916 til 1922. 1901–1905 átti hann sæti í milliþinganefnd í fátækra- og sveitarstjórnarmálum, og varð ávöxtur af starfi þeirrar nefndar sveitarstjórnarlögin frá 1907 og fátækralögin frá 1905. 1919–1921 sat hann í yfirmatsnefnd fasteigna landsins og þá einnig um skeið í verðlagsnefnd. Eins og fyrr segir, fluttist hann til Reykjavíkur 1919 og keypti þá nýbýli sunnan við bæinn, Hlíðarenda, og bjó þar til dauðadags. Jafnframt gekk hann í stjórn Búnaðarfélags Íslands og sat í henni til 1924, var formaður hennar um 3 ára skeið, en gjaldkeri félagsins 1923–1934.
Strandamenn áttu þar traustan og ötulan foringja í héraði sem Guðjón var, bæði gætinn og glöggan fjármálamann og jafnframt áhugasaman og ódeigan til átaka um nýjar framkvæmdir, einkum í landbúnaðar- og verzlunarmálum. Sjálfur bjó hann þar rausnarbúi og stýrði kaupfélagi sínu með fullri forsjá.
Á þingi var Guðjón Guðlaugsson með aðsópsmestu kjarkmönnum í bændastétt, ræðumaður góður, kappsfullur og óvæginn, ekki sízt á yngri árum, vel verki farinn og hugkvæmur á margt, sem til framfara horfði, einkum í landbúnaði og sveitamálum. Hann mun t. d. hafa átt hugmyndina að stofnun ræktunarsjóðs Íslands. Um framsýni hans í málum bændastéttarinnar má og minnast þess, að hann var einn af aðalhvatamönnum fyrstu girðingalaganna, en við slíkri lagasetningu hraus almenningi þá mjög hugur, og ekki sízt bændunum sjálfum.
Guðjón Guðlaugsson mun jafnan skipa sæmdarsess í viðreisnarsögu íslenzkra bænda.
Ég vil biðja háttvirta þingmenn að votta minningu þessa látna merkismanns virðingu sína með að risa úr sætum sínum.