03.04.1939
Neðri deild: 33. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (2657)
Stjórnarskipti
forsrh. (Hermann Jónasson):
Að tilhlutun Framsóknarflokksins hafa síðan í þingbyrjun farið fram samtöl milli Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um myndun þjóðstjórnar.
Sjálfstfl. hefir nú gefið þau svör, að hann vilji taka þátt í slíkri stjórnarmyndun, en hefir þó sett fyrir þeirri þátttöku nokkur skilyrði, sem enn eru ekki útrædd.
Frá Alþfl. liggur málið ekki fyrir í því formi, að afstaða hafi verið tekin til þess.
Er því auðsætt, að enn muni til þess þurfa nokkra daga að reyna til þrautar, hvort þjóðstjórn, sem þessir þrír flokkar standa að, verði komið á, en orðræðum um það mál verður haldið áfram. En umtal og umræður, sem orðið hafa um gengislækkun og fundarsamþykktir. sem gerðar hafa verið af ýmsum um það mál, hefir hinsvegar skapað það ástand í landinu, að úr því verður að fá skorið nú þegar, hvort Alþingi fellst á gengislækkun. Það mál þolir héðan af enga bið. — Framleiðslan má ekki við því að bíða lengur eftir þeirri hjálp, sem henni yrði að leiðréttingu á skráningu krónunnar. En auk þess eiga sér nú þegar stað uppkaup á vörubirgðum, sem til eru í landinu, svo að til vandræða horfir. Jafnframt hliðra innflytjendur sér hjá að kaupa inn vörur og láta ef hendi, af ótta við að þurfa síðar ef til vill að greiða þær með breyttu gengi. — Þá eru eigi alllítil brögð að því, að útflytjendur dragi að selja vörur úr landi. Má segja, að afurðasalan sé því nær stöðvuð. Getur þetta m. a. valdið markaðstöpum. — Þá er og hitt eigi síður áberandi, að þeir, sem vörur selja úr landi, fresta afhendingu gjaldeyris í von um gengislækkun. En hvorttveggja þetta, sölutregðan og dráttur þess að skila gjaldeyrinum, hefir, eins og gefur að skilja, hin alvarlegustu áhrif á gjaldeyris- og viðskiptaástandið innanlands og gagnvart útlöndum, og verður eigi komizt hjá að ráða tafarlaust bót á því.
Af þessum ástæðum er nú borið fram á Alþingi frumvarp um þessi mál, og er það óumflýjanleg nauðsyn, að afbrigði frá þingsköpum verði veitt til þess að ekki þurfi að verða löng bið á afgreiðslu frumvarpsins, hvort sem það verður samþykkt eða fellt í þinginu.