18.04.1939
Sameinað þing: 6. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1327 í B-deild Alþingistíðinda. (2660)
Stjórnarskipti
forsrh. (Hermann Jónasson):
Eins og þingheimi er kunnugt, þá hefir tekizt samstarf á milli Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, eins og nánar kemur fram í símskeytum til konungs, er ég nú skal lesa:
„Allra þegnsamlegust tillaga um veitingu ráðherra lausn frá embætti og um skipun ráðherra.
Umræður þær, sem um nokkurt skeið hafa farið fram milli þriggja aðalþingflokkanna um þjóðstjórnarmyndun, hafa nú borið þann árangur, að samkomulag er nú fengið á milli þeirra um samvinnu í ríkisstjórn og um víðtækt samstarf í löggjafarmálum. Er samkomulag um það, að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eigi hvor um sig tvo ráðherra í ráðuneytinu og Alþýðuflokkurinn einn ráðherra.
Í sambandi við þetta samkomulag hefir atvinnu- og samgöngumálaráðherra Skúli Guðmundsson ákveðið að beiðast lausnar frá ráðherraembætti, og er það því allra þegnsamlegust tillaga mín, að yðar hátign mætti allra mildilegast þóknast að veita ráðherranum lausn frá embætti.
Samkvæmt ábendingum Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins leyfi ég mér hér með jafnframt að skýra frá, að æskilegt er, að skipaðir verði í ráðherraembætti þeir Jakob Möller alþingismaður, Ólafur Thors alþingismaður, og Stefán Jóh. Stefánsson hæstaréttarmálaflutningsmaður, forseti Alþýðusambands Íslands. Samkvæmt þessu leyfi ég mér lotningarfyllst að leggja það til, að yðar hátign mætti allra mildilegast þóknast að skipa Jakob Möller alþingismann, Ólaf Thors alþingismann, og Stefán Jóh. Stefánsson hæstaréttarmálaflutningsmann, forseta Alþýðusambands Íslands, til þess að vera ráðherra í ráðuneyti Íslands, en um embættiseið ráðherranna leyfi ég mér að gera sérstaka tillögu til yðar hátignar. Skipunarbréf hinna nýju ráðherra til allrahæstar undirskriftar leyfi ég mér að senda í pósti.
Forsætisráðherra, 11. apríl 1939. Allraþegnsamlegast
Hermann Jónasson“.
Jafnframt hefi ég sent annað símskeyti: „Konungurinn, Kaupmannahöfn.
Allra þegnsamlegust tillaga um skiptingu starfa ráðherranna, sem nú skipa ráðuneyti Íslands, og um breytingar um stundarsakir á allrahæstum úrskurði 29. des. 1924 um skipun og skipting starfa ráðherra o. fl.
Í því trausti, að yðar hátign megi allra mildilegast þóknast að fallast á aðra tillögu mína um veiting ráðherra lausn frá embætti og um skipun ráðherra, leyfi ég mér allra þegnsamlegast að bera fram eftirfarandi tillögu um skipting starfa ráðherranna.
Af málum þeim, sem samkvæmt konungsúrskurði 29. des. 1924 heyra undir forsætisráðherra, skulu utanríkismál falin ráðherra Stefáni Jóhanni Stefánssyni og ennfremur sveitarstjórnarmál, þar undir fátækramál og atvinnubótafé, tryggingarmál og heilbrigðismál. Af málum, sem heyra undir dóms- og kirkjumálaráðherra, skulu mér falin öll önnur mál en heilbrigðismál, og ennfremur landbúnaðarmál. Málunum, sem heyra undir atvinnu- og samgöngumálaráðherra skuli ráðherra Ólafi Thors falin öll önnur mál en landbúnaðarmál, iðnaðarmál, verzlunarmál, sveitarstjórnarmál, þar undir fátækramál og atvinnubótafé og tryggingarmál.
Af málum þeim, sem heyra undir fjármálaráðherra, skuli ráðherra Jakob Möller falin öll önnur mál en bankamál og gjaldeyrismál, og ennfremur iðnaðarmál. Ráðherra Eysteinn Jónsson fari með bankamál, gjaldeyrismál og verzlunarmál.
Samkvæmt þessu leyfi ég mér í dýpstu lotningu að leggja það til, að yðar hátign megi allramildilegast þóknast að ákveða, að skipting starfa ráðherranna verði nú þannig:
Af málum þeim, sem samkvæmt konungsúrskurði 29. des. 1924 heyra undir forsætisráðherra, fari ráðherra Stefán Jóhann Stefánsson með utanríkismál, ennfremur sveitarstjórnarmál, þar undir fátækramál og atvinnubótafé, tryggingarmál, og heilbrigðismál.
Af málum þeim, sem heyra undir dóms- og kirkjumálaráðherra, fari ég með öll önnur mál en heilbrigðismál, og ennfremur landbúnaðarmál. Af málum þeim, sem heyra undir atvinnu- og samgöngumálaráðherra, fari ráðherra Ólafur Thors með öll önnur mál en landbúnaðarmál, iðnaðarmál, verzlunarmál, sveitarstjórnarmál, þar undir fátækramál og atvinnubótafé, og tryggingarmál.
Af málum þeim, sem heyra undir fjármálaráðherra, fari ráðherra Jakob Möller með öll önnur mál en bankamál og gjaldeyrismál, og ennfremur iðnaðarmál. Ráðherra Eysteinn Jónsson fari með bankamál, gjaldeyrismál og verzlunarmál.
Forsætisráðherra, 17. apríl 1939.
Allra þegnsamlegast
Hermann Jónasson.“
Við þessum símskeytum hefi ég móttekið svo hljóðandi svarskeyti;
„Forsætisráðherrann, Reykjavík.
Hans hátign konungur féllst í dag, 17. apríl, á tvær tillögur um veitingu ráðherra lausn frá embætti og um skipun ráðherra og skiptingu starfa ráðherranna, sem nú skipa ráðuneyti Íslands, og um breytingu um stundarsakir á allra hæstum úrskurði 29. des. 1924 um skipun og skipting starfa ráðherra o. fl.
Konungsritari.“
Um leið og atvinnumálaráðherra Skúli Guðmundsson lætur af störfum og annar maður tekur sæti hans í ríkisstjórninni, vil ég fyrir hönd sjálfs mín og fjármálaráðherra þakka honum, ekki aðeins fyrir gott starf heldur og fyrir framúrskarandi samvinnu og samstarf.
Mér er alveg óhætt að fullyrða það, að mikil ánægja hefir verið með starf hans sem atvinnumálaráðherra, ekki aðeins meðal okkar flokksmanna hans, heldur og meðal andstæðinganna. Hann hefir áreiðanlega verðskuldað þá ánægju fyrir störf sín.
Í tíð Skúla Guðmundssonar sem atvinnumálaráðherra hefir verið leyst eitt af stærstu hagsmunamálum sjávarútvegsins, og sjálfur hefir hann unnið stærsta verkið í undirbúningi þess máls, bæði sem formaður nefndar þeirrar, er skipuð var til að athuga afkomu sjávarútvegsins, og sem ráðherra.
Ég þakka Skúla Guðmundssyni störfin. Eins og kunnugt er, hafa síðan í þingbyrjun farið fram viðræður milli Alþýðuflokksins, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins um að taka upp samstarf um lausn þeirra viðfangsefna, sem nú eru mest aðkallandi með þjóðinni.
Árangur þeirra viðræðna hefir orðið sá, að mynduð hefir verið ríkisstjórn, sem skipuð er fulltrúum þessara þriggja flokka og hefir stuðning þeirra, svo sem ég hefi tilkynnt hér á háttvirtu Alþingi.
Ríkisstjórnin telur, að meginviðfangsefni hennar verði fyrst og fremst :
1) Að efla framleiðslustarfsemina í landinu,
2) Að búa þjóðina undir að geta lifað sem mest af gæðum landsins, og gera aðrar ráðstafanir þjóðinni til sjálfsbjargar, ef til ófriðar kemur,
3) Að sameina lýðræðisöflin í landinu til verndar og eflingar lýðræðinu,
4) Að sameina þjóðina um þann undirbúning, sem gera þarf í sambandi við framtíðaákvarðanir í sjálfstæðismálinu.
Samkvæmt þessari meginstefnu mun ríkisstjórnin starfa, og marka aðgerðir sínar samkvæmt henni, en með tilliti til þeirra úrlausnarefna, sem næst liggja fyrir, tekur ríkisstjórnin þetta fram:
Skráningu íslenzku krónunnar hefir nú nýlega verið breytt og með því gert mikið átak til hagsbóta fyrir framleiðendur.
Ríkisstjórninni er ljóst, að þrátt fyrir þá breytingu, sem gerð hefir verið á skráningu krónunnar, er ekki fært að afnema innflutningshöftin. en hún er einhuga um það, að stefna að því, að innflutningshöftunum verði af létt jafnóðum og fjárhagur þjóðarinnar og viðskiptaástandið leyfir. Ennfremur telur ríkisstjórnin rétt að veita nú þegar frjálsan innflutning á nokkrum nauðsynjavörum, og verður gefin út um það opinber auglýsing jafnóðum og þær ráðstafanir koma til framkvæmda.
Ríkisstjórnin telur mikla nauðsyn á því í sambandi við gengisbreytinguna, að gera ráðstafanir til þess að vinna gegn aukinni dýrtíð, m. a. með því að framkvæma verðlagseftirlit og þau ákvæði, sem leidd hafa verið í lög um húsaleigu.
Ennfremur mun ríkisstjórnin vinna eftir megni að sparnaði og lækkun útgjalda, bæði hjá ríkinu og bæjarfélögum.
Í því sambandi tekur ríkisstjórnin þó fram, að hún telur, að ekki beri að draga úr verklegum framkvæmdum hins opinbera eða framlögum til atvinnubóta eins og atvinnuástandið er nú í landinn. En hún mun stefna að því til hins ýtrasta, að framleiðslustarfsemi landsmanna færist svo í aukana, að hún geti fullnægt atvinnuþörfinni. Meðan þess gerist þörf að leggja fram fé til atvinnubóta, mun ríkisstjórnin nota atvinnubótaféð til þess að draga úr atvinnuleysinu og einnig, eftir því sem við verður komið, verja því til þess að auka hinar eldri atvinnugreinar og koma á fót nýrri, arðgæfri framleiðslustarfsemi, þannig. að atvinnubótaféð hjálpi til að útrýma þörfinni fyrir áframhaldandi framlög.
Ríkisstjórnin mun og stuðla að því eftir fremsta megni, að þau fiskiskip og bátar, sem til eru í landinu og nothæf eru, verði rekin til útgerðar og framleiðslan einnig aukin á þann hátt.
Ennfremur vill ríkisstjórnin vinna að aukningu og endurnýjun fiskiflotans með því að veita til þess fé á svipaðan hátt og verið hefir undanfarin tvö ár, eftir því sem fjárhagur leyfir.
Þótt hér séu talin nokkur atriði viðvíkjandi útgerðinni, vegna þess, hve mjög þau mál hafa verið rædd síðustu mánuðina, og þörf aðgerða aðkallandi, er það að sjálfsögðu meginstefnuatriði stjórnarinnar. svo sem að framan segir, að styðja og efla framleiðslustarfsemina yfirleitt, ekki sízt landbúnaðinn, nauðsynlegan iðnað og ennfremur rannsókn og meiri nýtni á auðlindum landsins, sem þegar er hafinn nokkur undirbúningur að. Stjórnin mun m. a. leggja sérstaka áherzlu á stóraukna framleiðslu ýmissa landbúnaðarvara til notkunar innanlands, svo sem garðávaxta allskonar grænmetis o. fl. Og ennfremur verður áherzla á það lögð, að auka verulega notkun landbúnaðarafurða innanlands.
Að sjálfsögðu er þessi yfirlýsing enganveginn tæmandi starfsskrá, heldur, eins og fyrr segir, megindrættir og nokkur höfuðmál, er næst liggja fyrir. — Ríkisstjórnin hefir þegar rætt um ýmsar framkvæmdir, er síðar verða ræddar opinberlega.
Ráðherrar Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins munn í stuttum ræðum gefa yfirlýsingar um viðhorf sinna flokka, m. a. um samstarf í ríkisstjórninni.
Framsóknarflokkurinn leggur fyrir sitt leyti áherzlu á, að um framkvæmd fjárlaga sé náið samstarf í ráðuneytinu og ennfremur framkvæmd í samgöngu- og sjávarútvegsmálum.
En þó ber að minni hyggju að leggja megináherzlu á það, að samstarfið í ríkisstjórninni sé yfirleitt sem bezt og gagnkvæmast. Flokkar þeir, sem meginhluti allrar þjóðarinnar stendur að, og sem áður hafa deilt hart í þremur andstæðum fylkingum. hafa nú tekið upp samstarf. Það hefir tekið langan tíma, m. a. mikið af störfum þingsins, að eyða tortryggni og laða saman hin mismunandi sjónarmið flokkanna. Allur þorri landsmanna mun skilja, hve stórt verk hefir hér verið unnið, og þeir munu ekki sjá eftir þeim fjármunum og tíma, sem til þess hefir verið varið, — ef þetta samstarf getur tekizt.
Það sem tvímælalaust hefir átt sterkastan þátt í því að þoka mönnum saman til samstarfs, er hið erfiða ástand íslenzks atvinnulífs, fyrst og fremst framleiðslunnar, og þá einkum við sjávarsíðuna, — og þar af leiðandi fjárhagserfiðleikar þjóðarinnar allrar. — Við vitum það allir, að framleiðslan er undirstaða þess, að við Íslendingar getum lifað og starfað sem sjálfstæð menningarþjóð. Við finnum það einnig, hvar í flokki sem við stöndum, að vegna þeirra erfiðleika, sem nú steðja að íslenzkri framleiðslu, og um leið þjóðinni sem heild, vegna fjárpestar og langvarandi aflabrests, verðlækkunar og markaðshruns, er þess brýn þörf, að þjóðin standi saman sem heild — og keppi sem heild að sameiginlegu marki. Þegar og stöðugt syrtir að í alþjóðamálum og stríðshættan virðist vaxa ört með hverjum degi, vænti ég þess af hverjum góðum Íslendingi, að hann skilji það sjónarmið. að það sé nauðsyn, að þjóðin mæti þeim erfiðleikum. sem ófriður myndi valda. sem heild, en ekki í hörðum deilum hver við annan.
Af þessum ástæðum göngum við til samstarfs, því þótt við séum allir hinir sömu flokksmenn og við höfum verið, erum við þó fyrst og fremst Íslendingar, sem höfum þær skyldur að horfa yfir flokkssjónarmiðin, þegar og að svo miklu leyti sem við erum sannfærðir um, að líf þjóðarinnar og heill krefst þess.
Að þetta sjónarmið verði ríkjandi í samstarfinu, bæði í ríkisstjórninni og hjá þjóðinni, tel ég vera grundvöll þess, að samstarfið megi takast.
Ef félagsheildir, stéttir eða einstaklingar, sem standa að baki ráðherrum í ríkisstjórninni. sýna ásælni í því að fá dreginn sinn taum eitt fet framar því, sem réttlátt er samanborið við aðra, og framar því sem alþjóðarheill leyfir, og látið verður undan þeirri ásælni, þá mun samstarfið, að mínu áliti sem forsætisráðherra, mistakast.
Til samstarfsins er stofnað til þess, að stjórnin geti haft nægilegan styrkleika og öryggi til þess að framkvæma hvert mál eingöngu frá sjónarmiði almenns réttlætis og alþjóðarheilla, — en án tillits til krafna frá félagsheildum, stéttum eða einstaklingum, framar því sem þetta sjónarmið markar.
Ef þessari reglu verður fylgt í samstarfinu, þá hygg ég, að það verði þjóðinni til blessunar, — og ég vil vona, að svo verði.