04.01.1940
Neðri deild: 104. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (2688)

Starfslok deilda

forseti (JörB) :

Þetta mun verða síðasti fundur þessarar hv. d. að þessu sinni, og liggur ekki annað fyrir en að slíta störfum deildarinnar.

Ég vil biðja hv. þdm. að veita mér ásamt öðrumhvorum skrifara deildarinnar heimild til þess að ganga frá gerðabók d., því að það eru nokkrir fundir, sem ekki hefir verið unnt að ganga frá til fulls.