03.04.1939
Neðri deild: 33. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

69. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):

Ég vil gera nokkra grein fyrir frv. því á þskj. 119, um gengisskráningu og ráðstafanir í því sambandi. sem flutt er að tilhlutun ríkisstj.., af mér, hv. 1. þm. S.-M. (EystJ), hv. þm. Ísaf. (FJ) og hv. þm. Borgf. (PO).

Á undanförnum árum, sérstaklega 1936 og 1937, hafa útvegsmenn oft gert kröfur til Alþ. og ríkisstj. um, að ráðstafanir yrðu gerðar af hálfu hins opinbera til hagsbóta fyrir sjávarútveginn. Þeir hafa fært sem ástæður fyrir þessum kröfum verðfall á sjávarafurðum á síðustu árum, samfara markaðshruni og miklum tilkostnaði við framleiðsluna. Get ég í þessu sambandi minnzt á bréf, sem stj. Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda ritaði ríkisstj. hinn 1. des. 1937. Í bréfi þessu er þeim tilmælum beint til ríkisstj. og Alþ., að gera þær ráðstafanir, sem tiltækilegastar þættu, til þess að forða útgerðinni frá því hruni, sem fyrirsjáanlegt væri framundan, ef haldið yrði áfram að reka þessa atvinnugrein ár eftir ár með tapi. Meðal annars fyrir þessar endurteknu óskir útgerðarmanna voru á síðasta Alþ. samþ. l. um kosningu 5 manna nefndar til þess að gera athuganir á hag og rekstri togaraútgerðarinnar og gera till. um þau mál. Þessi mþn. var kosin á Alþ. 1938 og hefir starfað síðan. Hefir nú, um leið og þetta frv. er lagt fram, verið útbýtt meðal þm. skýrslu frá þessari mþn. um þessi efni. N. hefir aflað sér upplýsinga um afkomu og efnahag togaraútgerðarinnar á árunum 1933–1937, að báðum árum meðtöldum; einnig um veiðitíma togaranna, aflamagn, verðmæti aflans og einstaka kostnaðarliði, sem útgerð eru samfara. Ennfremur eru í þessari skýrslu nokkrar upplýsingar um togaraútgerð í nágrannalöndunum. Samandregnir reikningar flestra togaraútgerðarfyrirtækja fylgja með þessari skýrslu. Samkv. þessum reikningum hefir tap þessara togara á árunum 1933–1937 numið samtals hátt á fjórðu millj. kr., en við þetta er það að athuga, að afskriftir af verði togaranna hafa verið allmiklu minni á þessum árum en eðlilegt verður að teljast, og með því að reikna með 20 þús. kr. fyrningargjaldi á hverjum togara á ári, sem mþn. taldi, að alls ekki mætti áætla lægra, verður tap togaraútgerðarinnar yfir 5 millj. kr. samtal. á þessum 5 árum. En til viðbótar má benda á það, að mþn. fékk ekki upplýsingar eða rekstrarreikninga frá öllum togaraútgerðarfyrirtækjum, og var það aðallega vegna eigendaskipta. sem orðið hafa á þessu árabili, en vitað er, að margir þeirra togara, sem enga reikninga hafa sent, hafa verið reknir með miklu tapi á árunum 1933–1937. Í árslok 1937 var efnahagur togaraútgerðarfyrirtækjanna þannig, ef þau eru tekin sem heild, að þau vantaði um 2 millj. kr. til þess að eiga fyrir skuldum. En vitað er, að hagur þeirra hefir versnað til muna síðan. Það er vitanlegt, að árið 1938 var togaraútgerðin yfirleitt rekin með miklu tapi, og einnig það, sem af er þessu ári, og er því efnahagur útgerðarinnar miklu verri nú en hann var í árslok 1937. Ástæðurnar fyrir þessum töpum eru vitanlega margar og mismunandi hjá hinum einstöku fyrirtækjum. Vafalaust mætti koma við meiri hagsýni og sparnaði í rekstri sumra skipanna, en höfuðorsakirnar til hinnar slæmu afkomu togaraútgerðarinnar yfirleitt tel ég vera aflaleysi undanfarinna ára og lágt verð á sjávarafurðum, miðað við þann kostnað, sem togaraútgerð er samfara. Einnig má benda á það, að íslenzku botnvörpungarnir eru yfirleitt orðin gömul skip, meðalaldur þeirra um síðustu áramót var 18 ár, og viðhaldskostnaður á svo gömlum skipum hlýtur að vera mikill. Vegna þess, hve efnahagur þessarar atvinnugreinar er orðinn þröngur, hvílir mjög mikill vaxtaþungi á mörgum togarafyrirtækjum. A. m. k. í aflaleysisárum eru togarar að ýmsu leyti óhentugri veiðitæki en smærri skip. Þetta á þó einkum við um síldveiðar, þar sem stórum erfiðara er að láta rekstur togaranna bera sig á þeim veiðum en smærri skipa. En þrátt fyrir það, þótt togararnir séu yfirleitt orðnir gamlir og ekki sem heppilegastir, verður ekki hjá því komizt, eins og nú hagar til í okkar þjóðfélagi, að nota þessi veiðitæki, meðan þess er kostur, og þess vegna verður að gera ráðstafanir til þess, að rekstur þeirra stöðvist ekki. Skýrslu mþn. fylgir áætlun, sem tveir af nm. gerðu í nóv. síðastl., um rekstur togara yfir árið. Er þar gert ráð fyrir, að togarinn sé 150 þús. kr. virði, og reiknaðir vextir af þeirri upphæð. Einnig gert ráð fyrir 20 þús. kr. á ári í fyrningargjald. Áætlunin sýnir um 30 þús. kr. rekstrarhalla yfir árið. Vil ég í þessu sambandi geta þess, að n. í heild sinni stendur ekki að þessari áætlun, og ég veit, að einn nm. telur, að hallinn á rekstri togaranna sé hér of lágt áætlaður.

Til viðbótar því, sem hér hefir verið sagt um hag togaraútgerðarinnar, má benda á, að hagur vélbátaútvegsins er víðast hvar þröngur. Sá útvegur er þó nokkru betur settur en togaraútgerðin, þar sem skipin eru yfirleitt yngri og því ekki eins dýr í rekstri. Vélbátaeigendur hafa líka nýlega fengið skuldaskil fyrir atbeina hins opinbera, en margir þeirra munu hafa safnað skuldum síðan. Og um línuveiðagufuskipin er vitað, að hagur þeirra er enn verri en vélbátanna.

Af því, sem hér hefir verið tekið fram, má öllum vera ljóst, að óhjákvæmilegt er að gera ráðstafanir til stuðnings útgerðinni, til viðbótar því, sem gert hefir verið á síðustu þingum, svo sem með afléttingu útflutningsgjalds á saltfiski, tolla af kolum og salti, og ýmsum fleiri ráðstöfunum. Útvegurinn þarf að geta borið sig í meðalárferði, ef allrar hagsýni og sparnaðar er gætt í rekstrinum, og þarf að gera ráðstafanir til þess, að svo geti orðið. Það stefnir til ófarsældar, ef annar aðalatvinnuvegur þjóðarinnar, og sá, sem mest skapar af útflutningsverðmæti, er rekinn með tapi ár eftir ár. Það hlýtur smám saman að valda stöðvun í þessari atvinnugrein, því að fjármagnið leitar til annarra viðfangsefna, þar sem arðvon er meiri, og hlýtur það að orsaka atvinnuleysi hjá þeim, sem starfað hafa við sjávarútveginn.

Í frv. er lagt til, að gerð verði breyt. á verðskráningu íslenzku krónunnar til hagsbóta fyrir útflytjendur. Er lagt til, að sterlingspundið verði hér eftir skráð á 27 kr. og önnur erlend mynt í samræmi við það. — Þess skal getið, að nokkuð hefir verið rætt um aðrar leiðir en gengisbreytingu til stuðnings framleiðslunni. Fordæmi má finna hjá öðrum þjóðum um, að útflutningsverðlaun hafi verið greidd fyrir einstakar vörutegundir. Ef sú leið væri farin hér á landi, þyrfti vitanlega að ná fé til þess með nýjum álögum. Beinir skattar eru þegar orðnir háir hér, og munu vera hærri hér en í nágrannalöndunum. Það hefði því ekki verið hægt að ná miklu fé til greiðslu útflutningsverðlauna öðru vísi en með sköttum og tollum, sem hefðu fyrst og fremst lent á þeim sömu aðiljum, sem gengisbreytingin snertir. En benda má á það, að sú leið hlyti að verða mjög erfið í framkvæmd. Það hefði orðið örðugt að ná inn nýjum sköttum og tollum í þessu skyni, og mjög vafasamt að finna reglur fyrir úthlutun á því fé milli útvegsmanna.

Breyting á verðgildi íslenzku krónunnar er fyrst og fremst gerð vegna framleiðslunnar í landinu, til að örva atvinnulífið og auka útflutninginn. Þegar velja átti leiðir til stuðnings útgerðinni, kom að sjálfsögðu til álita, til viðbótar því, sem ég þegar hefi nefnt, hvaða leið væri hagstæðust fyrir gjaldeyrisverzlunina, sem eins og vitað er, hefir verið örðug að undanförnu. Eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri hefir undanfarið verið meiri en framboðið. Gengi íslenzku krónunnar hefði því vafalaust verið lægra að undanförnu, ef því hefði ekki verið haldið föstu með einkasölu bankanna. Þá ráðstöfun, sem hér er lagt til, að verði gerð, má því meðfram skoða sem viðurkenningu á því, að verð á erlendum gjaldeyri hafi verið lægra hér á síðustu tímum heldur en orðið hefði, ef gjaldeyrisverzlunin hefði verið frjáls. Það er vitanlega æskilegt, að gengisbreytingar verði sem minnstar og sjaldgæfastar. En það raskar því ekki, að það getur verið mjög örðugt að halda uppi til lengdar gengisskráningu, sem er mjög fjarri því, sem yrði, ef gjaldeyrisverzlunin væri frjáls.

Í þessu frv. er ákvæði um skipun n., sem hafi það hlutverk, að gera yfirlit um framfærslukostnað í Reykjavík fyrir og eftir gildistöku laganna, eftir sérstökum reglum, sem um það verða settar. Kæmi í ljós, að hækkun á framfærslukostnaði nemi meiru en 5%, skal kaup verkafólks og sjómanna hækka sem nemur helmingi þeirrar hækkunar á framfærslukostnaði, sem orðið hefir, ef hún nemur ekki yfir 10%, en um 2/3 af því, sem hækkunin nemur yfir 10%. Kemur þessi kauphækkun til framkvæmda í júlí n. k., og aftur 1. jan. 1940, og á hún einnig að ná til lágt launaðra fjölskyldumanna, þó að þeir hafi fasta atvinnu, ef laun þeirra nema undir 300 kr. á mánuði, eða 3600 kr. yfir árið, og tilsvarandi lægra annarstaðar á landinu. Að öðru leyti skal kaup þessara stétta og allra, sem eru hærra launaðir, ekki hækka um eins árs skeið, eða til 1. apríl 1940.

Það þykir réttmætt á þennan hátt að mæta gengisbreyt. að nokkru með kauphækkun, að því er þá snertir, er hafa stopula atvinnu eða eru mjög lágt launaðir, þó að hærra launaðir menn og einhleypt fólk, sem hefir fasta atvinnu, fái ekki hækkað kaup sitt. Þeir síðarnefndu hafa á allan hátt betri ástæður og meira öryggi um afkomu heldur en daglaunamenn og sjómenn, sem hafa haft mjög stopula atvinnu að undanförnu vegna erfiðleika framleiðslunnar. Hinsvegar þykir ekki ástæða til að mæta að fullu með beinni kauphækkun þeirri hækkun á framfærslukostnaði, sem kann að verða, þar sem gera má ráð fyrir, að atvinnan í landinu aukist til muna við þær ráðstafanir, sem lagt er til í frv. þessu, að gerðar verði til að tryggja atvinnureksturinn og auka hann. Má því vænta þess, að tekjur þeirra, sem vinna að framleiðslunni, verði meiri eftir en áður og afkoma þeirra batni, þrátt fyrir þá hækkun, sem kann að verða á framfærslukostnaðinum.

Þá eru í frv. ákvæði, sem tryggja það, að sjómenn geti orðið aðnjótandi þeirrar verðhækkunar á sjávarafurðum, sem leiða mun af verðbreytingu peninganna. Eru það fyrirmæli um, að útgerðarfyrirtækjum sé skylt að ráða sjómenn gegn aflahlut í stað fastákveðins kaupgjalds, ef þeir óska þess fremur. Kostir hlutarútgerðarfyrirkomulagsins eru í mínum augum margir fram yfir annað skipulag. Eykur það áhuga allra, sem að útgerð vinna. — Þeir bera úr býtum eftir því, sem framleiðslan gefur, og það er réttlátasta fyrirkomulagið.

Í þessu frv. eru einnig ákvæði um það, að frá 1. jan. 1940 skuli breytt launafyrirkomulaginu hjá yfirmönnum á togurunum. Svo sem kunnugt er, hefir það viðgengizt undanfarin ár, að yfirmenn á togurunum hafa tekið laun sín að mestu leyti í premíu og bruttóafla. En áður en premían er reiknuð, á samkv. frv. að draga frá verð fyrir kol og veiðarfæri. Það verður að telja, að yfirmenn á togurunum geti haft nokkur áhrif á það, hve mikið eyðist, og ætti þetta að verða þeim hvöt til þess að gæta hagsýni við veiðarnar. Í frv. er ákvæði um, að hlutarmenn, sem hafa gert samninga um sölu á hlut sinum fyrir ákveðið verð, geti innan hálfs mánaðar ákveðið um þann fisk, er þeir hafa eigi látið af hendi, þegar lögin ganga í gildi, að hann skuli, í stað hins samningsbundna verðs, greiddur með því verði, sem raunverulega fæst fyrir hann við sölu, að frádregnum kostnaði, og geti þeir á þennan hátt tryggt sér þá verðhækkun, sem verða kann á hlutunum.

Þá eru einnig í þessu frv. ákvæði um verðlag á kjöti og mjólk á innlendum markaði. Verðbreytingar á þeim vörum eiga að fara eftir sömu reglum sem kaupgjaldsbreytingar. Verður að telja þetta eðlilegt, að þetta haldist í hendur, og þó að bændur fái ekki dýrtíðaraukninguna bætta að fullu með verkhækkun á framleiðsluvörunum, má vænta þess, að sala á mjólk og kjöti á innlendum markaði aukist vegna þeirra ráðstafana, sem gerðar verða til þess að örva framleiðsluna við sjávarsíðuna. Bændur fá því meiri og tryggari innlendan markað fyrir framleiðslu sína heldur en orðið hefði, ef útgerðin hefði haldið áfram að dragast saman.

Sérstök ástæða er til þess að benda kaupstaðabúum á það, að með ákvæðum þessa frv., ef samþ. verður, eru gerðar ráðstafanir til þess, að þeir geti að verulegu leyti sparað sér þau auknu útgjöld, sem verðlækkun krónunnar að öðrum kosti hefði í för með sér, með því að nota hlutfallslega meira en áður af innlendum vörum, því að verðlag á þeim verður eftirleiðis hlutfallslega hagstæðara fyrir neytendur en áður, samanborið við verð á erlendum vörum. Kaupstaðabúar geta því sparað sér aukin útgjöld af völdum gengisbreytingarinnar með því að auka neyzlu á íslenzkum vörum, um leið og þeir með því styðja framleiðslustarfsemina og atvinnulífið í landinu. Er ástæða til að vekja á þessu sérstaka athygli.

Ennfremur er ákvæði um, að útlánsvextir í bönkum og öðrum lánsstofnunum skuli ekki hækka á þessu ári og að fyrst um sinn til 14. maí 1940 skuli óheimilt að hækka leigu eftir hús og aðrar fasteignir frá því, sem er við gildistöku laganna. Húsaleigan er mjög stór útgjaldaliður hjá kaupstaðabúum, þó einkum í Reykjavík, og er sjálfsagt að koma í veg fyrir hækkun hennar. Það er nauðsynlegt að gera öflugar ráðstafanir til þess að vinna móti dýrtíðinni, bæði með þeim ákvæðum, sem í þessu frv. felast, og með því að beita ákvæðum laga um verðlag á vörum, sem sett voru á næstsíðasta Alþ.

Loks eru í frv. ákvæði um, að ríkisstj. geti sett með reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd l. í einstökum tilfellum.

Fjárhagsafkoma þjóðarinnar byggist fyrst og fremst á útflutningi á íslenzkum vörum. Aðeins með útflutningi getur íslenzka þjóðin staðið við skuldbindingar sínar erlendis og keypt nauðsynjar frá útlöndum. Ef framleiðslan dregst saman jafnframt því, sem fólki fjölgar í landinu, hlýtur það að valda þrengingum fyrir alla landsmenn, og þótt menn eigi peninga eða fasteignir, er slíkt einskisvirði, ef framleiðslustarfsemin stöðvast, þar sem hún er sá grundvöllur, sem öll þjóðfélagsbyggingin hvílir á. Þeim mönnum, sem hafa fastlaunuð störf hjá einkafyrirtækjum eða því opinbera, og sem sumir ef til vill telja, að sér sé íþyngt með þessum ráðstöfunum, má benda á það, að ef framleiðslustörfin stöðvast, hverfa um leið möguleikarnir til að greiða þeim launin. Verzlunarfólkið og iðnaðarfólkið myndi þá einnig tapa sinni atvinnu, því að þá hlýtur að taka fyrir innflutning á verzlunarvörum og hráefnum til iðnaðarins. Það er því á hörmulegasta misskilningi byggt, ef nokkur maður eða kona í landinu felur sér óviðkomandi erfiðleika framleiðendanna og álítur, að allt annað geti gengið sinn venjulega gang, hvernig sem framleiðslunni vegnar. Efling framleiðslunnar og aukin úfflutningur er ekki aðeins hagsmunamál þeirra manna, sem hafa lagt fé sitt og lánsstofnana í þennan atvinnurekstur, og þeirra verkamanna, sem vinna beint að framleiðslunni. Það er ekki síður lífsnauðsyn fyrir alla aðra. Það er raunverulega jafnmikið hagsmunamál embættismannsins, verzlunarmannsins, iðnaðarmannsins, sem vinnur í nýjum iðngreinum hér eða annarstaðar, og byggingameistarans, sem lifir á því að byggja falleg hús hér í höfuðstaðnum eða annarstaðar og veit, að húsið getur því aðeins staðið, að grunnurinn sé traustur. Ef framleiðslan er rekin með tapi ár eftir ár, er voði fyrir dyrum, ekki aðeins hjá þeim, sem starfa beinlínis að framleiðslunni, heldur einnig hjá öllum hinum. Aukning framleiðslu og útflutnings er ekki sérhagsmunamál einstakra manna eða stétta, það er jafnmikið hagsmunamál allra einstaklinga og allra stétta þjóðfélagsins.

Á undanförnum árum hefir fólksstraumurinn leitað frá framleiðslustörfunum að öðrum viðfangsefnum. Hið mikla kapphlaup, sem átt hefir sér stað um fastlaunaðar stöður, þarf að hætta, en það hættir því aðeins, að þess sé gætt, að eigi sé lakar búið að þeim mönnum, sem vinna nauðsynlegustu störfin, framleiðslustörfin, heldur en öðrum þegnum þjóðfélagsins. Slíkt er hvorttveggja í senn nauðsynja- og réttlætismál.

Með þeim ráðstöfunum, sem frv. þetta fjallar um, er sú alþjóðarnauðsyn viðurkennd, og þess er því fastlega vænzt, að máli þessu verði vel og vinsamlega tekið bæði af hæstv. Alþingi og alþjóð. Þar sem frv. þetta er flutt af þm. úr 3 aðalflokkum þingsins, sé ég ekki ástæðu til, að það fari til þingn., og vil því óska þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.