03.04.1939
Neðri deild: 33. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í B-deild Alþingistíðinda. (272)
69. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi
*Pétur Ottesen:
Við Íslendingar eigum við það að búa, og e. t. v. í miklu ríkara mæli en aðrar stærri og ríkari þjóðir, að það veltur á ýmsu um afkomu alls almennings í landinu. Það liggja náttúrlega margar orsakir til þess, hvað öryggið í þessum efnum hjá okkur er valt. Það kemur m. a. til af því, að við búum hér við erfið náttúruskilyrði, og okkar afkoma byggist alveg á því, hvernig okkur tekst að hagnýta þau gæði, sem felast í sjónum við strendur landsins og í íslenzkri gróðurmold. Þetta er allt misbrestasamt með framleiðsluna, auk þess, sem því er ekki að leyna, að með hagnýtingu þessara gæða hefir tekizt upp og niður. En það er okkur alveg ljóst, Íslendingum, að allt er undir því komið, hvort okkur tekst að láta atvinnuvegina bera sig og svara þeim arði, sem nauðsynlegur er til þess, að við getum notað þau gæði, sem náttúran færir okkur upp í hendurnar. Nú er kunnugt, að á undanförnum árum hefir hallað ákaflega mikið undan fæti hjá þeim mönnum, sem bera hita og þunga atvinnurekstrarins hér á landi, og þá ekki síður hvað snertir sjávarútveginn, þann atvinnuveginn, sem leggur þjóðarbúinu til mestan gjaldeyri og utanríkisverzlunin stendur mest á. Ég álít, að velti mest á því, af því að sá atvinnurekstur leggur fram svo mikinn meiri hluta af þeim verðmætum, sem við þurfum til þess að halda okkar þjóðarbúskap uppi, eins og við nú rekum hann, til þess að við getum fullnægt þeim kröfum um lifnaðarhætti, sem við höfum vanið okkur á, og staðið við okkar skuldbindingar gagnvart öðrum þjóðum, sem við höfum gert og orðið að gera til þess að efla framtak og framkvæmdir í þessu landi. En eins og ég sagði áðan, hefir fyrir þessari grein atvinnurekstrarins ákaflega hallað undan fæti á undanförnum árum. Þetta hefir okkur að vísu verið ljóst. Og það hefir verið ýms viðleitni sýnd til þess að reyna að mæta þessu hruni sjávarútvegsins, þótt árangur hafi ekki náðst, enda ekki svo á þeim málum tekið sem vera þurfti. Því að atvinnuleysinu, sem skapazt hefir við það, að sjávarútvegurinn hefir gengið saman, hefir verið reynt að bæta úr með því að veita stórar fjárfúlgur úr ríkissjóði og bæjarsjóðum til þess að fylla upp í þessi skörð og halda uppi atvinnurekstri, sem í flestum tilfellum er óarðbær atvinnurekstur. Munurinn á því að veita þetta fé beint til fólksins til matvöru- og nauðsynjakaupa, hefir í mörgum tilfellum orðið sáralítill, og eftirtekjan eftir því. Þessi leið er gersamlega ófær til þess að fylla upp í skörðin, sem leiðir af því, að úr atvinnurekstrinum dregur. Við verðum algerlega að hverfa út af þessari braut, vegna þess að í þessum efnum erum við á hættulegum villigötum. Á síðasta Alþingi var skipuð milliþn. til þess að athuga afkomu togaraútgerðarinnar. Þá þótti í svo óvænt efni komið hvað þetta snerti, að lengur mætti ekki láta undir höfuð leggjast að fara að kynna sér til hlítar orsakir þess ófarnaðar, að atvinnuvegurinn var að hrynja til grunna, og jafnframt leita að leiðum til þess að snúa aftur á þeirri háskalegu braut. Það var fyrir sérstakar ástæður, að ég fór í þá n., sem hafði rannsókn þessara mála með höndum. Það var vegna þess, að annar sjálfstæðismannanna í n. varð að vera langdvölum erlendis, og tók ég því hans sæti í n. Við þá athugun, sem fram fór í n., ekki aðeins á hag stórútgerðarinnar, heldur líka í sambandi við þá athugun, sem við reyndum að gera á sjávarútveginum í heild, þá staðfestist það alveg fyrir mér, sem ég raunar hafði fullkomið hugboð um áður, að hér væri komið í svo óvænt efni, að frágangssök væri að halda uppi okkar þjóðarbúskap í líkingu við það, sem verið hefir undanfarið, nema gerbreytt yrði öllu viðhorfi í þessu efni. Um þetta voru allir nm. algerlega sammála. Verkefni n. var því aðallega, auk þess sem gerð hefir verið allfróðleg skýrsla um afkomu togaraútgerðarinnar, að leita að leiðum, sem við gætum bent á, að líklegar væru til þess, að hér yrðu bætur á ráðnar, tapreksturinn stöðvaður og atvinnurekstrinum aftur komið inn á þá braut, að hann gæti borið sig þannig, að hann gæti byggt sjálfan sig upp og þannig mætt þeim atvinnuskilyrðum, sem framtið þjóðarinnar krefst.
Við athugun á þessu voru það aðallega 2 leiðir, sem talað var um í n. Önnur leiðin var sú, að viðurkenna það fall íslenzkra peninga, sem orðið er sem bein afleiðing af því, hvernig atvinnuvegirnir hafa hrunið hjá okkur undanfarin ár, — gera þetta til hagsbóta fyrir útgerðina og aðra framleiðendur. Hin leiðin var að afla með einhverju móti allmikils fjár, sem útgerðinni og framleiðendum í landinu væri svo veitt sem nokkurskonar styrkur til viðhalds sinni afkomu. Það voru ekki aðrar höfuðleiðir, sem talað var um í n., en þessar tvær, og í þeim umr., sem fram hafa farið um þetta siðan, þá ætla ég, að aðalatriðin séu ekki annað en þessar tvær leiðir, sem menn hafa fest huga sinn við. Mér fyrir mitt leyti blandast ekki hugur um, að sú leiðin, sem er langsamlega líklegust til þess að bera árangur í þessu efni, er að viðurkenna fall íslenzkra peninga til hagsbóta fyrir atvinnuvegina, því að við vitum, að bein ástæða til þeirra þrenginga, sem skapazt hafa hér á landi við hrun atvinnuveganna, er það, að með valdboði hefir verið tekið af framleiðendum það verðmæti, sem þeir hafa fengið fyrir framleiðslu sína, og þeim borgað samkvæmt valdboði 22,l5 kr. fyrir sterlingspundið, en það er sú erlenda mynt, sem reiknað er í það verð, sem við fáum fyrir okkar afurðir. Það er tekið af þeim fyrir þetta verð, þó að í frjálsum viðskiptum sé til grundvöllur til að selja þennan gjaldeyri fyrir miklu hærra verð en þessu nemur. Mér er sagt, að að því, er sala hefir farið framhjá bönkunum, sem mun vera í stærri stíl en menn hafa almennt gert sér hugmynd um, þá muni sterlingspundið vera selt upp undir 30 kr. og í sumum tilfellum upp undir 40 kr. af þessu má greinilega sjá, þar sem grundvöllur er til fyrir því að geta selt gjaldeyrinn fyrir þetta verð, hversu hlutur framleiðenda hefir verið gífurlega skertur undanfarin ár, þegar hann hefir verið af þeim tekinn með þessu valdboði og ekki greitt fyrir hann nema nokkur hluti af því verðmæti, sem fáanlegt var fyrir hann í frjálsri sölu. Með þessum hætti hafa þessir framleiðendur verið stórkostlega skattlagðir umfram alla aðra borgara þessa þjóðfélags, þessir menn, sem að þessari framleiðslu standa við sjó og í sveit, sem allt veltur á, hversu afkoma þjóðarinnar er á hverjum tíma. Þetta hefir því ekki aðeins bitnað á þessum mönnum, þó að það hafi vitanlega komið harkalegast niður á þeim, þannig að margir, sem áður voru vel stæðir menn og ráku útgerð með miklum myndarskap og dugnaði, hafa tapað eignum sinum vegna þessarar breyt., sem orðið hefir í þjóðfélaginu, heldur hefir þetta vitanlega bitnað á þjóðfélaginu í heild.
Þegar svona er komið, þarf vitanlega stór átök, ef unnt á að vera að kippa öllu í lag. Og það fyrsta til, að slíkt megi verða, er, að fólkið hafi skilning og greind til að snúast á réttan hátt við þeim staðreyndum, sem við höfum nú fyrir framan okkur. Og það er engum minnsta vafa undirorpið, þegar slík röskun sem þessi er komin inn í okkar þjóðfélag, að einasta leiðin til að lagfæra þetta er sú, að viðurkenna það gengisfall, sem orðið hefir á íslenzkri krónu, viðurkenna það með réttlátri skráningu krónunnar til hagsbóta fyrir atvinnuvegina í landinu. Það er ekki nein önnur leið til að rétta þetta. Hin leiðin er að leggja nýja skatta og tolla á allar vörur, sem fluttar eru til landsins. Því hefir verið lýst yfir, að búið sé að spenna bogann svo hátt sem nokkur kostur er á, og þó líklega nokkru meira, því að ég hygg, að svo langt sé komið skattpíningu hér á landi, að jafnvel sé farið að draga mátt úr okkar aðallíftaug, sem er sjálfbjargarviðleitnin í landinu, og því eigi hægt að höggva oftar í þann knérunn.
Það komu fram frá fulltrúa jafnaðarmanna till. til tekjuöflunar. Annað var, að ríkið tæki í sinar hendur alla utanríkisverzlunina og verzlunarágóðinn væri svo veittur sem styrkur til afvinnurekendanna; hitt var að leggja á tolla, og þá vitanlega á allar nauðsynjar landsmanna, því að þær allmörgu milljónir, sem hefði orðið að afla, hefðu vitanlega orðið að dreifast yfir á þessa skattstofna. Ég sé því ekki annað en að hvor þessara leiða, sem hefði verið valin, hefði borið að þeim sama brunni, að dýrtíðin hefði aukizt í landinu, þó með þeim mun, að þetta hefði komið á miklu meiri dýrtíð og alvarlegri þrengingum heldur en gengislækkun mundi gera, því að með gengislækkun er viðurkenndur réttur framleiðendanna til þess gjaldeyris, sem þeir afla, eins og gert er með þessu frv., og fá þeir þar með nýja hvöt til þess að draga ekki af sér þrátt fyrir alla erfiðleika, sem þeir eiga við að búa, og það hafa þeir sannarlega ekki gert. Á þessum tveimur aðferðum er því sá munur, sem í mínum augum er ákaflega mikill, að með gengislækkun er viðurkenndur réttur framleiðenda og þeir hvattir til dáðríkra starfa, en í styrkveitingaleiðinni felst engin slík hvöt.
Þá má ennfremur benda á það, sem ég sagði áðan um, hvað gífurlega framleiðendur hefðu verið skattlagðir, vegna þess, hvað hátt gengið hefði verið á krónunni. Þeir hafa orðið að leggja fram þann gjaldeyri, sem hefir þurft til allra innkaupa til landsins, sem nú er um 50 millj. kr. Samkvæmt þeirri gengisskráningu, sem hér er nú till. um, hafa þeir á undanförnum árum því orðið að greiða 20%, 1/5 hluta, af öllu því verðmæti, sem hefir verið flutt inn í landið.
Nokkurn hluta af því hefðu þeir vitanlega orðið að greiða vegna dýrari innkaupa á sínum nauðsynjum, en það hefði þó aldrei numið nema sennilega helmingi þess fjár, sem hefir verið af þeim tekið með þessum hætti. Ennfremur má benda á þann gjaldeyri, sem þeir hafa orðið að leggja fram til greiðslu vaxta og afborgana af skuldum ríkissjóðs. Þar hafa þeir verið skattlagðir alveg sérstaklega um 20–22% af því, sem ríkið hefir varið árlega til að greiða vexti og afborganir erlendis, sem munu vera fullar 3 millj. kr. Þetta kemur til viðbótar við alla aðra skatta, sem þessir atvinnuvegir hafa orðið að greiða. Hér við bætist svo enn, að við greiðslu útsvara hafa þeir verið skattlagðir á sama hátt um 1200 þús. kr. vegna afborgana, sem bæjar- og sveitarfélög hafa orðið að greiða af sínum erlendu lánum, og til viðbótar við 6–8 % vexti, sem þeir verða að borga til bankanna — en það ætla ég, að vextirnir séu í bönkunum, þegar með er talið stimpilgjald, sérstaklega af víxilviðskiptum — þá hafa þeir orðið að borga bönkunum 20% af þeim 2700 þús. kr., sem bankarnir verða að. borga í vexti og afborganir erlendis.
Af öllu því, sem ég hefi nú skýrt frá, má það því vera lýðum ljóst, að eigi er undarlegt, þó að atvinnurekendur þessa lands hafi eigi getað rönd við reist undanfarin ár, þar sem þeir hafa verið svo gífurlega skattlagðir umfram alla aðra borgara landsins, og það á þeim árum, sem þeir hafa átt við að stríða aflabrest og sölutregðu og lágt verð, sérstaklega á saltfiskinum. Það er því ekki nema eðlilegt, að atvinnuvegirnir séu komnir í þær rústir, sem þeir eru nú í. En þrátt fyrir allt þetta hafa atvinnurekendurnir ekki viljað leggja árar í bát, og sýnir það þann kraft og kjark og þann dugnað, sem í þeim býr, að þeir skuli ekki alveg hafa misst móðinn, þegar þeir hafa haft við slík kjör að búa, sem áreiðanlega þýddi ekki að bjóða neinum öðrum atvinnurekendum upp á. Þetta sýnir, að ekki er um neitt að sakast við þessa menn, þó að svona sé komið, þegar að þeim er búið með slíkum hætti sem þessum. Það er síður en svo. Þessir menn hafa fullkomlega lagt fram krafta sína, og ég vil segja, að hlutskipti þessara manna er auk þess, sem ég nú hefi greint, eitthvert það allra erfiðasta sem þekkist. Það vita þeir, sem þekkja þau kjör og kringumstæður, sem sjómenn hér í kringum Faxaflóa eiga við að búa. Þar telst vertíðin hefjast um áramót. Klukkan 12 á miðnætti leggja sjómennirnir út á bátum sínum í því svartasta náttmyrkri, sem til er á þessu hveli jarðar. Þá sigla þeir 2–3–1 tíma beint til hafs. Þar leggja þeir lóðir sínar og verða að liggja þar hverju sem viðrar og hvað sem upp á kemur, þar til birtir af degi; fyrr er ekki hægt að draga lóðina. Þeir koma til lands undir kvöld. Þá er aflanum komið á land og svo lagt af stað undir eins aftur. Þetta eru nú þau kjör, sem íslenzkir sjómenn, sem margir eru útgerðarmenn líka, eiga við að búa, sem sýnir bezt, að sjósóknin hér og fisköflun er ekki tekin með sitjandi sælunni.
En þegar hrun er í útgerðinni, eins og nú hefir því miður verið, — hvert er þá hlutskipti þessara manna, þegar þeir, eftir. að hafa lagt fram sína ýtrustu krafta, koma í bankana og sýna reikninga með tapi? Þá verða þeir að skríða flatir fyrir stjórnendum bankanna til að biðja þá um ný lán til þess að fá að halda áfram undir þessum glæsilegu kringumstæðum, sem þessir menn lifa við. Þeir verða að taka á móti því sem einhverju náðarbrauði, þessir menn, ef þeir geta kríað út eitthvert lán til að fá að byrja sömu baráttuna enn á ný, til þess að mega enn á ný leggja líf sitt í hættu úti á reginhafi í roki og myrkri og byl. Þetta eru kjör þessara manna. Ég hefi oft verið í för með þeim til bankana og segi það ekki öðruvísi en það er. Í þessu felst enginn áfellisdómur á þá, sem stjórna bönkunum, þó að þeir séu tregir til að lána þeim, sem gengur svona illa fyrir. Þeir eiga að lána sparifé landsmanna og eiga að gæta hagsmuna þeirra, sem hafa falið bönkunum sitt fé til ávöxtunar. En þegar komið er fyrir framleiðendum þessa lands eins og ég hefi nú lýst, þá verður að viðurkenna rétt þeirra til þess gjaldeyris, sem þeir afla, og fá þeim hann til ráðstöfunar. Hér er lagt til, að sterlingspundið verði skráð á 27 krónur. Það hefir verið farið fram á 30 krónur, og ætla ég, að þeir, sem það vildu, hafi haft mikið til síns máls, að gera slíkar kröfur, þótt ekki hafi verið talið fært að ganga lengra. Þessar ráðstafanir og aðrar, sem þessu verða að fylgja, geta orðið til mikilla hagsbóta.
Mér þykir ekki ástæða til að fara frekar út í þetta mál að öðru leyti en að taka það fram, að samfara því, sem þessar ráðstafanir eru gerðar, verður að draga úr útgjöldum ríkis og bæjarfélaga og sníða yfirleitt alla okkar lifnaðarhætti eftir því erfiða ástandi, sem við eigum nú við að búa, og kem ég þá að því aftur, sem ég sagði í upphafi, að það viðreisnarstarf, sem hér á nú að byrja, grundvallast fyrst og fremst á því, hversu ríkan skilning fólkið hefir á því ástandi, sem við eigum nú við að búa. við skulum vona, að þjóðin sé gædd þeirri dómgreind og þeim skilningi, að allir reyni að taka höndum saman um að greiða götu okkar lífsbjargar sem allra bezt, svo að við getum notið og skipt á milli okkar þeim gæðum, sem hér eru, og örvað alla krafta þessa lands til að hagnýta þessi gæði. En tryggasta leiðin til að örva þessi öfl er að viðurkenna með þeim hætti, sem hér er lagt til, umráðarétt framleiðendanna yfir sinni eigin vöru, sinni eigin framleiðslu.