22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2788)
152. mál, bráðabirgðaráðstafanir
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Um þetta mál hafa orðið svo miklar umr. bæði meðal hv. þm. og eins í blöðum bæjarins, að það er sjálfsagt kunnugt öllum hv. dm., svo um það þarf ekki að hafa langa framsögu; auk þess var gerð allrækileg grein fyrir efni þess við 1. umr. málsins af hv. 1. flm. frv.
Um afgreiðslu þessa máls, sem vísað var til fjhn., þrátt fyrir það, þó mjög mikið vafamál væri um það, hvort það ætti þar heima, er það að segja, að n. hefir verið í samvinnu og samráði við hæstv. ríkisstj. um afgreiðslu málsins, en ráðh. munu aftur hafa verið í samráðum hver við sinn flokk um málið, svo þar af leiðandi hefir töluvert verið fjallað um þetta mál, þó það hafi ekki verið beint í þinginu sjálfu.
Árangur þess starfs, sem lagt hefir verið fram til þess að rannsaka málið, hefir orðið sá, að samkomulag hefir orðið um afgreiðslu þess milli hæstv. ríkisstj. og fjhn., og má sjá þann árangur í nál. fjhn. á þskj. 546, og eins á þeim málum, sem eru á dagskrá hér á eftir.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er um breyt. á ýmsum l. og lagabálkum um óskyld efni. Það hefir þess vegna þótt réttara að fella ýmislegt úr þessu frv., sem menn þó álíta rétt, að gangi í höfuðatriðum fram. En í stað þess, að þessi atriði séu áfram í þessu frv., þá hafa þau verið borin fram í sérstökum lagafrv. Þess vegna er það, að fjhn. óskipt ber hér fram 3 lagafrv., sem eru aðeins upp úr þessu frv., og meiri hl. n. ber auk þess fram fjórða lagafrv. Auk þessa er 1. gr. frv., eins og menn muna, komin inn í lagafrv., sem hv. d. er búin að afgreiða, sem sé framfærslul.
Það eru þá í fyrsta lagi ákvæði 5. gr. frv., sem eru um rannsóknarstofu atvinnuveganna. Þau ákvæði hefir fjhn. borið fram í sérstöku frv. Í öðru lagi eru það ákvæði 8. gr., sem eru viðvíkjandi útvarpinu. Í þriðja lagi eru ákvæði 14. gr., b-liður, sem n. hefir borið fram sem frv. til l. um breyt. á l. um fræðslu barna og fjallar um það, að sameina fámenn skólahverfi, þannig, að einn kennari geti kennt í tveimur eða fleiri fámennum skólahverfum.
Þá er fjórða frv., sem meiri hl. fjhn. ber fram. Það er ekki beinlínis tekið upp úr þessu frv. eins og það liggur fyrir, heldur upp úr brtt. við frv., sem fjallaði um breyt. á l. um fiskimálanefnd. Þetta frv. er borið fram af meiri hl. fjhn., því hv. 10. landsk. hefir ekki viljað vera með í flutningi þess. En aðalefni þess frv. er, að nefndarmenn í fiskimálanefnd verði aðeins þrír, í stað þess að þeir eru sjö eins og nú er.
Ég hefi leyft mér að nefna þessi frv., sem fjhn. ber fram og soðin eru upp úr því frv., sem hér liggur fyrir, því þetta mál gefur beinlínis tilefni til að minnast á þau. En hafi ég að einhverju leyti farið út fyrir þingsköp að því er þetta snertir, þá vil ég bæta úr því með því, að ég mun láta þessi fáu orð um þessi frv. nægja sem framsögu fyrir þeim frv., þegar að þeim kemur, og mun ég ekki taka til máls um þau að tilefnislausu, þegar þau verða tekin fyrir.
Auk þessara fjögurra frv., sem fjhn. öll eða meiri hl. hennar ber fram og soðin eru upp úr því frv., sem hér liggur fyrir, þá höfum við nm. einnig borið fram þáltill., sem er að efni til brtt. á þskj. 435, 2. tölul., við þetta frv. Eins og till. er nú orðuð, þá er hún borin fram í þessari d., en tilætlun okkar flm. var sú, að hún væri borin fram í Sþ.
Auk þess, sem samkomulag hefir orðið um að mæla þannig með nokkrum ákvæðum frv., nokkuð breyttum, í sérstökum lagafrv. og þáltill., þá hefir einnig orðið samkomulag um að mæla með nokkrum gr. frv. Það eru 6., 7. og 10. gr. frv., sem eru nokkuð breyttar, en 11., 17. og 19. gr. óbreyttar. Svo er 9. gr. frv., sem í nál. eða brtt. n. er að vísu lagt til, að falli niður, en n. leggur jafnframt til, að efni gr. sé að nokkru leyti tekið upp í aðra gr. frv., 7. gr.
Ég sé svo ekki ástæðu til að rekja nánar efni þessara gr., sem ég hefi nú minnzt á, því þó þetta mál hafi ekki verið rætt á þingfundi nema í eitt skipti, þá er það svo þaulrætt meðal þm., að öllum hv. dm. er vel kunnugt, í hverju þessar breyt. liggja, sem hér er farið fram á.
Þó að samkomulag hafi orðið um að mæla með allmörgum ákvæðum frv., ýmist þannig, að borin hafa verið fram sérstök lagafrv., eða mælt er með gr. eins og þær standa í frv., þá hefir samt komið í ljós, að sum ákvæði frv. hafa svo lítið fylgi meðal þm., að ekki þykir ástæða til að halda þeim ákvæðum til streitu, þar sem ekki hefir náðst samkomulag um þau milli flokkanna. Þessi ákvæði frv., sem n. leggur þar af leiðandi til, að falli niður með öllu, eru í fyrsta lagi ákvæði 2. gr. frv., um fækkun skipstjórnarmanna á íslenzkum skipum. Í öðru lagi er lagt til, að 3. gr. falli niður, sem er svipaðs eðlis, um að fækka megi þjónustufólki á skipum. Þó ég hafi borið þessa brtt. fram ágreiningslaust, þá verð ég samt að láta í ljós undrun út af því, að ekki skuli hafa náðst samkomulag um að fækka þessu fólki, t. d. í Ameríkuferðum og öðrum millilandasiglingum, þar sem vitað er, að sárafáir eða jafnvel engir farþegar verða með skipunum. Ég segi þetta frá mínu sjónarmiði, en ég hefi ekkert umboð frá n. til þess.
Þá er lagt til, að 1. gr. frv. falli niður, að banna þær takmarkanir, sem nú eru á því, að lærlingar séu teknir í hinar ýmsu iðngreinir.
Þá er lagt til, að 10. gr. falli niður, en hún er viðvíkjandi aukatekjum við ýms störf í ríkisstofnunum. Ennfremur 13. gr., sem lengir vinnutíma í skrifstofum. Þá er líka lagt til, að stafl. a. í 14. gr. falli niður, en hann er um styttingu námstíma í skólum. Ég verð líka um þá brtt. að gera þá aths. frá eigin brjósti, að mér þykir það undarlegt, að ekki skuli hafa náðst samkomulag um það, að þetta gengi fram, þar sem það hefir verið framkvæmt í vetur, óátalið af öllum, að stytta námstímann í ýmsum skólum. Vitanlega getur það ástand skapazt, að þetta verði alveg nauðsynlegt.
Þá er lagt til, að 15. gr. falli niður, en hún var um það, að aldurstakmarkið í menntaskólana skyldi vera 13 ára aldur. Ég sé ástæðu til að taka það fram, að ég fyrir mitt leyti er alveg samþykkur þessari breyt. á frv., því ég hefi ekki talið rétt að setja þetta ákvæði, að hækka aldurstakmarkið í þessu sambandi.
Ég vil benda á, að í grg. þessa frv. er svo sagt, að flm. frv. áskilji sér rétt til að hafa óbundið atkv. um einstök ákvæði þess. Þó við 3 nm. í fjhn., sem eigum sæti í þessari d., flytjum þetta frv. samkv. ályktun, sem fjvn. gerði um að fela okkur flutning þess, þá er vitanlega langt frá því, að við þessir 3 menn höfum hver fyrir sig ætlað að fylgja öllum ákvæðum frv. eða viljað taka ábyrgð á þeim, eða a. m. k. er það svo um mig. Frv. var samið af fjvn. og gengið frá því eins og meiri hl. n. samþ. um hvert einstakt atriði. Vil ég taka það skýrt fram, að sum ákvæði frv. gat ég fyrir mitt leyti alls ekki fallizt á.
Þá er lagt til, að 16. gr. falli niður, en hún er um takmörkun á tölu nemenda í háskólanum. Ennfremur er lagt til, að 18. gr. frv. falli niður, sem er um skyldu opinberra stofnana til þess að gefa Alþ. skýrslu um laun starfsmanna.
Þá leggur n. til, að breyt. verði gerð á fyrirsögn frv. Telur n., að sú fyrirsögn, sem hún hefir valið, sé meir í samræmi við efni frv., a. m. k. eins og það verður, ef till. n. verða samþ.
Ég skal geta þess að lokum, að eins og nál. ber með sér, þá hefir einn nm., hv. 10. landsk., skrifað undir það með fyrirvara, og mun hann gera grein fyrir þeim fyrirvara. Ég vil þó slá þann varnagla, að það kann að vera, að eitthvað af því, sem ég hefi sagt fyrir n. hönd, sé aðeins sagt fyrir mína hönd og hv. 1. þm. Reykv., en ekki fyrir hönd hv. 10. landsk.
Þetta mál hefir fengið nafn, eins og allir vita, manna á meðal, sem sé „höggormurinn“, og er það auðvitað vegna þess, að eins og í biblíunni segir, þá var höggormurinn vitrasta skepna jarðarinnar. En það er eins um hann og allar lifandi verur á jörðunni, að það er eðli þeirra að geta af sér afkvæmi, og hér liggja nú fyrir, ekki aðeins höggormurinn sjálfur, heldur 5 afkvæmi hans síðar á dagskránni. Eins og ég gat um fyrr í ræðu minni, þá mun ég láta þessi orð nægja einnig um hin málin, sem eftir eru á dagskránni.
En viðvíkjandi því, sem hv. 10. landsk. sagði hér utan dagskrár um það, að þessi mál ættu að fara til þeirra n., sem þau heyra undir, þá skýt ég því atriði til hæstv. forseta, þegar þessi mál verða tekin fyrir, hvort honum sýnist ástæða til að stinga upp á því, að þessum málum verði vísað til þeirra n., sem þau heyra undir. Væri nógur tími, eða ef þessar n. vildu gangast inn á að skila áliti, t. d. á morgun, þá vil ég geta þess, að mér fyndist, eins og hv. 10. landsk., að það væri í raun og veru rétt, að þetta væri gert. Ég legg ekki kapp á þetta, vegna þess, hvernig ástatt er um þingtímann, og einnig vegna þess, að samkomulag virðist orðið um afgreiðslu málsins.