22.03.1939
Neðri deild: 24. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í C-deild Alþingistíðinda. (2840)
43. mál, tekjuskattur og eignarskattur
*Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti! Þetta frv. hefir verið flutt tvisvar áður hér í þessari hv. d., og á síðasta þingi var það samþ. út úr d., en þá var komið svo nálægt þinglausnum, að ekki vannst tími til að afgr. það í hv. Ed.
Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök, sem færð hafa verið fyrir frv. á fyrri þingum, en vil aðeins rifja það upp, að frv. er ætlað, ef að l. verður, að veita þeim hásetum á skipum, sem hafa þar frítt fæði, undanþágu frá því, að telja það sem tekjur fram til skatts. Þessar tekjur munu almennt vera metnar hjá sjómönnum á 2 kr. á dag. En það er vitað, að það munar heimili manna ákaflega miklu, hvort heimilisfaðirinn er fjarverandi svo að segja allan tíma ársins eða getur verið heima og sinnt einu og öðru, sem orðið getur til hagsbóta og sparnaðar fyrir heimilið. Það mun þess vegna vera reynsla manna, að þeir spari ekki neitt með því að hafa frítt fæði á skipum, þrátt fyrir það, þótt fæðið kosti útgerðina sjálfa allmikið. Nú er ekki farið fram á það í frv., að þessara hlunninda njóti aðrir en þeir, sem eru lágt launaðir, eða þeir menn, sem hafi minni skattskyldar tekjur en 2500 kr. Þetta nær því ekki nema til háseta og hinna allra lægst launuðu yfirmanna, ef þeir hafa fjölskyldur. Ég geri ráð fyrir því, að menn séu búnir að átta sig á, að tekjur þessara manna eru ekki geysimiklar. Það var lengi álitið, að hásetar á togurum hefðu svo miklar tekjur, að óhætt væri að ganga nokkuð nærri þeim með skattgreiðslu. Ég hefi haft tækifæri til þess undanfarin ár, ásamt fjórum öðrum mönnum, að gera athugun á þessu, og okkur hefir reynzt kaup háseta á togurum vera rúmlega 14 kr. á dag þann tíma, sem skipin ganga. En þau ganga í mesta lagi ? hluta ársins. Þeir sjómenn, sem hafa skiprúm allar vertíðir, geta því ekki komizt í hærri brúttótekjur en 3 þús. kr. og þaðan af minna. Það er þess vegna hugarburður einn, að þessir menn hafi miklar tekjur, og þó svo væri, er hér sleginn sá varnagli, að þeir einir skuli njóta þessara hlunninda, sem hafi minni tekjur en 2500 kr. skattskyldar.
Á báðum þeim þingum, sem þetta frv. hefir áður verið borið fram á, hefir fjhn. þessarar hv. d. haft málið til meðferðar. Nú má ætla, að þar sem n. gaf sér sérstaklega góðan tíma til þess að athuga frv. í bæði skiptin — ég held 4 mán. — þá sé hún búin að átta sig algerlega á því. Ég álít því, að frv. eigi ekkert erindi til þessarar virðulegu n., en ef það þykir þinglegri meðferð á málinu að láta það ganga til n., legg ég til, að því verði vísað til sjútvn.