17.03.1939
Efri deild: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (2849)

34. mál, lögreglustjóri í Hrísey

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Það er sjálfsagt öllum ljóst, að störf oddvita og hreppstjóra hafa aukizt mjög hin síðustu ár og að í stórum hreppum, einkum þar, sem eru kauptún, fer varla að verða hægt að ætlast til, að þessi störf séu höfð algerlega í hjáverkum, enda er það kunnugt, að víða er orðið erfitt að fá menn til að gegna þessum störfum, sérstaklega oddvitastörfunum, í hreppum sem kauptún eru í. Alþingi hefir fyrir löngu viðurkennt, að í stærstu kauptúnum þyrfti þetta umbóta við, og hefir sett lög um stofnun sérstaks lögreglustjóraembættis í allmörgum slíkum stöðum, og hefir hann á hendi bæði oddvita- og hreppstjórastarfið og er auk þess lögreglustjóri og hefir dómsvald í lögreglumálum.

Ég geri ráð fyrir, að hvert kauptúnið komi á fætur öðru og biðji um þetta sama, og býst ég við, að ekki verði hjá því komizt að verða við þessum beiðnum að einhverju leyti. Ég vil skjóta því fram til athugunar fyrir þá nefnd, sem fær frv. til meðferðar, að ég býst við, að rétt sé að setja heildarlög um það, hvenær kauptún eigi að fá þennan rétt, og að jafnvel sé athugandi, hvort ekki ætti að breyta út af þeirri reglu, sem upp hefir verið tekin þegar skipaðir hafa verið lögreglustjórar með dómsvaldi í lögreglumálum, að þá séu það jafnan lögfræðingar, en það mundi auðvitað verða ódýrara, ef svo þyrfti ekki að vera.

Ég tel, að í Hrísey séu sömu ástæður fyrir hendi og verið hafa í þeim öðrum kauptúnum, sem fengið hafa sérstakan lögreglustjóra. Því höfum við þm. Eyf. borið fram þetta frv. um að þar verði sérstakur lögreglustjóri. Nú er kauptúnið í Hrísey ekki ýkja stórt, varla eins fjölmennt og önnur kauptún, sem fengið hafa lögreglustjóra, en þess ber að gæta, að þótt íbúar kauptúnsins séu ekki ýkja margir, þá er þar fjöldi aðkomumanna yfir sumartímann, og mörg útlend skip koma þar meira og minna. Tollgæzla og ýmislegt eftirlit með skipum og útlendingum er því meira í Hrísey en venja mun í álíka kauptúnum. Þar að auki er kauptúnið í eyju, svo samband við Akureyri, þar sem lögreglustjórinn nú er, er nokkru erfiðara en annarstaðar af meginlandinu.

Annars er ástæðan til þess, að Hríseyingar biðja um þetta, tekin fram í bréfi oddvitans í Hríseyjarhreppi, sem prentað er sem fylgiskjal með frv. Legg ég til, að málinu verði vísað til allshn.