14.11.1939
Efri deild: 60. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í C-deild Alþingistíðinda. (2854)
34. mál, lögreglustjóri í Hrísey
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég get ekki orða bundizt um þetta frv., sem hér liggur fyrir. Ég og samnm. mínir í fjvn. höfum nú um meira en hálfsmánaðar skeið barizt við að greiða fram úr fjármálum ríkisins, eins og þeim er nú háttað. Það er víst, að nauðsynlegt verður að spara á ýmsum sviðum, og vafasamt, hvort það hrekkur til. Eitt mesta vandamálið eru launagreiðslur til embættis- og starfsmanna ríkisins. Við vitum það allir, að í okkar þjóðfélagi er tiltölulega meira af embættis- og starfsmönnum í þjónustu hins opinbera en hjá öðrum þjóðum. Nú er þessi mikli starfsmannahópur orðinn sá þungi á ríkissjóði, að naumast verður undir risið. Hafa því komið upp háværar raddir um að draga úr launagreiðslum ríkissjóðs og ríkisstofnana frekar en að hækka þær. Þegar litið er á það, að þeir starfs- og embættismenn, sem þegar eru hjá ríkissjóði, þykjast ekki hafa viðunanleg kjör, þá tel ég, að ekki geti komið til mála að fara enn að auka tölu þeirra.
Sú stefna var upp tekin hér á Alþ. fyrir nokkru, að stofna lögreglustjóraembætti hér og þar, en þó voru frá öndverðu skiptar skoðanir um réttmæti slíkra ráðstafana. Þessum embættum var smeygt inn með lágum launum. En þegar lögreglustjórarnir hófu störf sín, kom það brátt í ljós, að launin voru ónóg. Þau voru upphaflega um 2 þús. kr., en hafa síðan verið hækkuð upp í 3–4 þús. kr., auk skrifstofufjár, sem reyndist óhjákvæmilegt. Þessi embætti hafa því ekki í reyndinni aukið lítið greiðslubyrði ríkissjóðs. Þau lögreglustjóraembætti, sem mynduð hafa verið hingað til, hafa þó verið í nokkuð fjölmennum kauptúnum, en hér er í þessu frv. farið fram á skipun lögreglustjóra í þorp, sem hefir lítið yfir 300 íbúa. Ef við færum að byrja á þessu aftur, þá eru ekki fáir kaupstaðir, sem hafa fleiri íbúa en þetta kauptún, og mætti búast við, að þeir kæmu fljótlega á eftir. Í allshn. hefir verið bætt við till. um einn lögreglustjóra. Eitthvað bætist sennilega við í Nd., ef frv. kemst þangað, og svo koll af kolli.
Ég held, að fremur ætti að koma fram, að nú horfir málið allt öðruvísi við, því það er miklu minni þörf á lögreglustjóra en var þegar frv. kom fram á þessu þingi. Vegna allra aðstæðna verða minni tolltekjur heldur en áður, en innheimta þeirra á að vera eitt af aðalstörfum þessara nýju embættismanna. Eftir því, sem nú horfir, má búast við færri útlendum síldarskipum heldur en áður, og mjög geta breytzt aðstæður á ýmsan hátt. Ef við förum nú að byrja að opna fyrir þessari rás, sé ég ekki, hvar lendir um starfsmannahald. Ég vil nú óska þess, að þar sem aðstæður voru allt aðrar, þegar frv. kom fram, þá verði málinu frestað við þessa umr. og allshn. gefinn kostur á að athuga mál þetta að nýju áður en til atkv. er gengið við 2. umr. Þá mundi sú dagskrártill., sem hér kom fram, ekki koma strax til atkv., en ég tel sjálfsagt að samþ. hana, ef til atkvgr. kemur nú.