03.04.1939
Neðri deild: 33. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (286)
69. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi
*Finnur Jónsson:
Það er eftirtektarvert tímanna tákn, hvernig menn úr nazistadeild Sjálfstfl. og Kommfl., og það meira að segja hér í hv. d., vitna hver í annan og smjatta hver framan í annan og reyna í félagi, hvað þeir geta, að vega að Alþfl., því þeir vita báðir, að sá flokkur — og Alþfl. í öllum löndum — hefir verið langmesti þröskuldur í vegi fyrir þeim öfgastefnum, sem allt lýðfrelsi vilja afnema og lifa á óreiðunni í þjóðfélaginu. Hv. 5. þm. Reykv. sagði hér í hv. d. áðan, að Alþfl. ætti ekki skylt við þann flokk, sem hafi boðið sig fram sem Alþfl. við síðustu kosningar. Við hvað á þessi hv. þm? Allir vita, að hans flokkur er lagður niður. Eitt af því fyrsta, sem hann gerði ettir kosningarnar, var að hlaupa frá sínum flokki og villa á sér nafn og númer eins og togari, sem er að stela fiski í landhelgi.
Hv. 4. landsk. var hér með umr. um gengisfrv. frá árinu 1937, sem áttu að sanna, að Alþfl. hefði breytt skoðun í gengismálinu síðan 1937. En þær umr., sem hv. 4. landsk. vitnaði í, sanna ekki þetta. Það frv., á þskj. 78, var flutt árið 1937 af Hannesi Jónssyni og var um, að sett yrði sérstök gengisnefnd, sem ákvæði gengi. Þeirri n. voru ekki sett nein takmörk. Hún mátti ákveða gengið, hvenær sem hún vildi og hvernig sem hún vildi. Og í því frv. voru engin ákvæði um að hækka kaup verkamanna, þegar verðlag hækkar í landinu. Það voru engin ákvæði í því frv. um það, að sett skyldi húsaleigunefnd. Það er lítið í þessu frv., sem verið var að lesa umr. frá, sem á skylt við það frv., sem hér liggur fyrir. Og svo dirfist hv. 4. landsk. að koma með umr. um óskylt frv., sem ekkert á sameiginlegt við það frv., sem nú liggur hér fyrir, annað en það, að breyta gengisskráningunni. Þetta eru rökin, sem þessir hv. þm. leyfa sér að koma hér fram með á hæstv. Alþingi. Það má vel vera, og ég fel það líklegt, að við alþýðuflokksmenn höfum talsvert aðrar skoðanir á okkar skyldum við kjósendurna heldur en kommúnistarnir, sem búnir eru að breiða yfir nafn og númer. Ég hefi þá skoðun á mínum skyldum, að mér beri að greiða úr vandræðamálum, sem kemur fram í þessu frv., eins og ég álít sannast og réttast og heppilegast fyrir þjóðina á þeim tíma, sem þau mál ber að höndum. Eins og við alþýðuflokksmenn greiddum atkv. á móti gengisfrv. Hannesar Jónssonar 1937, sem var þessu frv. óskylt, eins munum við flestir greiða atkv. með þessu frv., sem hér liggur fyrir, á grundvelli þess, að það eru orðnar breyttar aðstæður í þjóðfélaginu. (ÍslH: Að hverju leyti eru breyttar aðstæður síðan 1937?). Hv. 4. landsk. er úr sjávarkjördæmi, og þó segir hann: „að hverju leyti eru breyttar aðstæður síðan 1937?“ Ég sé ekki ástæðu til að upplýsa mann úr sjávarkjördæmi um það, að hverju leyti þær aðstæður séu breyttar síðan 1937, því að ef hann veit það ekki heiman að frá sér, þá get ég ekki á 6 mínútum upplýst hann um það. Ég álít þær ástæður liggja hér fyrir, að það dugi ekki að halda sér við sínar fyrri skoðanir. Þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi, verða menn að endurskoða sínar skoðanir frá fyrri tímum. Menn verða að breyta sinni skoðun eftir því, sem við á og heill þjóðarinnar krefst á hverjum tíma.
Hv. þm. sagði, að við hefðum svikið okkar stefnuskrá. En ég fyrir mitt leyti myndi skoða það svik við mína kjósendur, eins og ástæður eru nú um útgerðina í landinu, ef ég kæmi heim frá Alþ. og ekki með þá einu lausn, sem hægt var að fá í sjávarútvegsmálunum. Mínir kjósendur eru verkamenn og sjómenn, og ég tel hagsmunum þeirra borgið með því frv., sem hér liggur fyrir. Ég tel, að með því að tryggja þeim þá kauphækkun, sem með frv. er tryggð, sé sú ráðstöfun gerð, sem við alþýðuflokksmenn megum vel við una.
Ég vildi að endingu minnast á viðreisnarfrv. kommúnista. Það er bent á það af hv. 4. landsk. sem þriðju leiðina í því efni að hjálpa sjávarútveginum. En það hefir enginn maður utan þingflokks kommúnista tekið það frv. alvarlega. Ég hefi áður rakið efni þessa frv. og skal ekki misnota þann ræðutíma sem hæstv. forseti hefir gefið mér. Í þessu frv. er gert ráð fyrir að stofna útvegsmálaráð, og það á að fylgjast með rekstri allra útgerðarfyrirtækja og hafa stöðugt eftirlit með öllu, svo sem ástandi véla í skipaflotanum. Þetta frv. er einskonar naglasúpa upp úr fiskiráðsfrv. hv. þm. G.-K. (ÓTh) og fiskimálanefndarfrv. gamla, kryddað með dálitlu af sovétkommúnisma frá Rússlandi.