29.03.1939
Neðri deild: 29. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í C-deild Alþingistíðinda. (2864)
56. mál, áfengislög
*Flm. (Pétur Ottesen):
Mér þykir ekki ástæða til nú við þessa umr., nema tilefni gefist til, að ganga inn á efni frv., af því að gerð er grein fyrir þeim breyt., sem það felur í sér, í þeim ástæðum, sem fylgja frv. Mér þykir ekki heldur ástæða til að tala um þetta mál almennt nú. Mönnum er svo vel kunnugt um, hvernig er ástatt í þessu efni hér hjá okkur, að það er óþarfi við 1. umr. þessa máls að rifja það upp. Það, sem ég vil aðeins gera víð þessa umr., er að óska eftir, að málið fái að ganga til 2. umr. og til allshn. Jafnframt vil ég beina mjög eindregið þeim tilmælum til hv. allshn., að hún taki þetta mál sem fyrst til athugunar og greiði götu þess aftur inn í þingið, því að þótt kannske megi segja, að þær breyt., sem hér liggja fyrir, séu ekki mjög mikilvægar, þá ætla ég, að nokkur bót megi að þeim verða og því nauðsynlegt að fá frv. afgr. nú á þessu þingi.