28.12.1939
Neðri deild: 95. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í C-deild Alþingistíðinda. (2877)
56. mál, áfengislög
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Af því að í þessum umr. hefir verið vikið að bréfi utanríkismáladeildar um það, hvort frv. þetta bryti í bága við milliríkjasamninga, vil ég segja nokkur orð, einkum til þess að svara hv. þm. Borgf. Ég tek það fram, að málinu var beint til utanríkismáladeildar í því skyni að fá sem sannastar upplýsingar, án tillits til þess, hvernig litið væri á efni frv., hvort menn væru því hlynntir eða ekki. Bréf utanríkismáladeildar hefir því aðeins inni að halda upplýsingar um það, að hve miklu leyti frv. verður að teljast brjóta í bága við milliríkjasamninga. Þar er ekki um efni frv. að ræða, enda var ekki um það spurt af allshn. Nú minntist hv. þm. Borgf. á það og kannaðist við, að milliríkjasamningar hefðu verið gerðir 1933 af Íslands hálfu við Spán og Portúgal, og eru þeir birtir í Stjórnartíðindum l934. Þetta þekkir hv. þm. mjög vel og eins bréfaviðskipti, sem fram fóru milli umboðsmanns íslenzku stj. og Spánarstj., og hann hélt því ekki fram í ræðu sinni, að svo fremi að þessi samningur væri enn í gildi. þá brytu ákvæði frv. ekki í bága við hann. Ef samningurinn væri í gildi, þá væri hann því sammála utanríkismáladeild, en hinsvegar lét hann þá skoðun í ljós, að þessi samningur myndi vera fallinn úr gildi, ekki af því, að hann hefði verið felldur úr gildi á venjulegan hátt, heldur af utanaðkomandi ástæðum, heimspólitískum og fleirum. En um þetta að samningurinn sé ekki lengur í gildi vegna rásar viðburðanna, get ég ekki verið honum sammála. Þessir samningar hafa aldrei verið felldir úr gildi á þann hátt, sem venjuleg er með milliríkjasamninga, þannig að annar aðilinn eða báðir segi þeim upp eða þannig, að annar aðilinn rjúfi samningana og hinn telji sig þá ekki lengur bundinn af þeim. Þá er spurningin, hvort samningarnir séu fallnir úr gildi af því, að stjórnarbylting hefir orðið á Spáni. En það er ekki annað vitað en stj. á Spáni hafi gengið inn í alla milliríkjasamninga, sem áður höfðu verið gerðir og hún hefir viljað viðhalda. Til íslenzku stj. hefir ekkert borizt þaðan um það, að stj. á Spáni teldi sig lausa af samningunum, þó að stj.skipti hefðu orðið með þessum nokkuð óvænta hætti, enda þarf ekki af því að leiða, að milliríkjasamningar við Spán falli úr gildi. Það er líka vitað, að þau árin, sem liðin eru síðan samningarnir voru gerðir, hefir þeim verið framfylgt að nokkru leyti. Í skjóli þeirra hafa Íslendingar flutt saltfisk á spánskan markað, og síðast nú á þessu ári. Ég held því, að það sé misskilningur hjá hv. þm. Borgf., að rás viðburðanna og byltingarnar í heiminum hafi fellt samningana úr gildi. Þess vegna er það álit utanríkismáladeildar, að samningar Íslands annarsvegar og Spánar og Portúgals hinsvegar séu enn í fullu gildi. Um þetta var deildin spurð, og hún hefir látið í ljós það álit sitt, að viss ákvæði frv. brytu í bága við samningana. Það var skylda utanríkismáladeildar að gefa þinginu þær upplýsingar, er hún taldi réttar, og ég er sannfærður um, að þessar upplýsingar eru í raun og veru réttar.