28.12.1939
Neðri deild: 95. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í C-deild Alþingistíðinda. (2878)
56. mál, áfengislög
*Einar Olgeirsson:
Eins og sjá má á yfirlýsingu hv. allshn., byggir hún niðurstöðu sína algerlega á bréfi hæstv. félmrh. Það er eins og n. hafi ekki sjálf viljað taka ákveðna afstöðu í þessu máli. Það er tekið fram í nál., að þar sem efni frv. sé ýmist í ósamræmi við gildandi samninga eða brot á þeim, treysti n. sér ekki til að mæla með frv. Hér liggur því í rauninni fyrir til umr. bréf hæstv. félmrh., því að á því byggir n. sína till. Ef niðurstaða hæstv. ráðh., sem fram kemur í bréfi hans, reynist ekki rétt, ætti n. að vera reiðubúin að endurskoða sína afstöðu, þar sem hún er ekki byggð á öðru.
Hér er því um það að ræða, hvort Spánarsamningarnir séu enn í gildi eða ekki. Það mál tel ég þó ekki þörf að ræða frekar; það hefir hv. þm. Borgf. gert, og ég er honum sammála um það efni. Það liggur heldur ekkert fyrir frá núv. stj. á Spáni, sem hreki þann skilning Hinsvegar vil ég athuga málið frá sjónarmiði þeirra manna, sem líta svo á að samningarnir séu enn í gildi. Í bréfi hæstv. félmrh. er tekið fram, að Ísland hafi orðið að skuldbinda sig til að undanþiggja frá aðflutningsbanni á áfengi innflutning á spönskum og portúgölskum vínum, til þess að ísl. saltfiskur nyti beztukjarameðferðar í þessum löndum. Og í niðurlagi bréfsins segir hann, að í frv. felist möguleikar til að koma í veg fyrir sölu og þá væntanlega einnig innflutning á Spánarvínum.
Hér liggur því fyrir til athugunar sú spurning, hvort hægt sé að samþ. frv. án þess að það komi í bága við samningana, þótt þeir væru í gildi, sem ég tel, að ekki sé.
Ef verzlunarskýrslur eru athugaðar, sést, að innflutningur frá Portúgal nam
árið 1935
11 183 kr.
— 1936
19 683 —
— 1937
13 485 —
en frá Spáni
árið 1935
rúmlega 25 000 kr.
— 1936
13 584 —
— 1937
. . . 23 802 —
Innflutningur frá þessum löndum hefir því numið nálægt 30–40 þús. kr. hvert af þessum árum. Þetta er allur sá innflutningur, sem komið gæti til mála, að stofnað yrði í hættu, ef frv. væri samþ. Ef það er vilji þingsins, sem hefir reynzt vera vilji þjóðarinnar, að koma á þessum héraðabönnum, þá hlýtur spurningin að standa þannig frá sjónarmiði þeirra, sem telja samningana enn í gildi, að flytja inn þessi vín, enda þótt þau yrðu aldrei seld. Í versta falli myndum við þá „spandera“ þessum 30–40 þús. kr. til þess að halda í þessa samninga, ef ríkisstj. telur það nauðsynlegt, og eyðileggja síðan vínin.
Af því að ég vil ekki endurtaka hin ágætu rök hv. þm. Borgf. í þessu sambandi, læt ég mér nægja að benda á hina praktísku hlið þessara samninga, ef þeir væru enn í gildi, sem er í því fólgin, hvort ríkið vildi eyða 30–40 þús. kr. til að kaupa þessi vín og láta eyðileggja þau. Þannig horfir málið við, svo framarlega sem rök hv. allshn. í málinu eru aðalrökin. En engin önnur rök hafa verið færð hér fram. Ef þau rök standast ekki, sé ég aftur á móti ekki neitt því til fyrirstöðu, að menn samþ. frv. Hinsvegar vildi ég gjarnan láta það koma fram, að ef menn geta ekki samþ. frv., þá séu það önnur rök, sem til þess liggja, t. d. þau, að ríkinu sé þörf á þeim 2–3 millj. kr. á ári, sem áfengisverzlunin gefur í tekjur, og að þeir vilji af þeim ástæðum ekki stuðla að minnkun áfengisneyzlu í landinu með því að samþ. frv. Ef sú skoðun er ríkjandi, þá eru þetta skiljanleg rök frá hálfu þeirra manna, sem eru móti frv., og er rétt, að þau rök kæmu fram. En hugsanleg eru líka þau rök, að það sé vilji svo margra manna í landinu að neyta víns að rétt sé að leyfa þeim það án tillits til þeirra afleiðinga vínsins á menn, sem ekkert kunna með það að fara. Þau rök hafa ekki komið fram í þessu máli. Viðvíkjandi vilja ýmissa manna til þess að veita sér áfengi eru þetta rök, sem búa á bak við hjá þeim. Allshn. hefir skilað þannig þessum málum, að hún leggur fram rökst. dagskrá, sem byggist á upplýsingum utanríkismálarh., að hér sé um brot að ræða á gildandi samningum. Eins og hv. þm. Borgf. hefir réttilega komið með rök fyrir, virðast allir samningar á þessum sviðum fallnir úr gildi. Það má ef til vill með því að fallast á skoðun hv. félmrh. komast hjá því að verja þá staðreynd, að mikilli fjárupphæð er árlega varið til kaupa á þessum vínum. Ég álít fyllilega mögulegt að fella þessa rökst. dagskrá, svo framarlega sem það er vilji þingsins, og komi ekki í bága við gildandi samninga.
Hinsvegar vil ég segja það í sambandi við þetta mál, að um ekkert mál, sem komið hefir fram í þinginu upp á síðkastið, hefir vilji kjósenda komið svo áþreifanlega í ljós. Það var aðeins safnað undirskriftum í stærri kaupstöðum, og frv. hafa greitt atkv. sitt 22 þús. kjósenda. Það er enginn efi á því, að meiri hluti kjósenda í landinu stendur á bak við þær óskir, sem bornar eru fram í frv. Það liggja heldur engin staðfest mótmæli á þeim möguleikum að verða við þessum óskum. Ég vil þess vegna eindregið lýsa því yfir, að ég mun standa á móti þessari rökst. dagskrá, og álít, að frv. eigi fram að ganga eins og það er.