10.11.1939
Efri deild: 58. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)
105. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég hefi fátt að segja út af ræðu hv. þm. Hafnf. Hann vill halda fast við þá skoðun, að eðlilegt sé að lögbjóða, að þeir einir séu í verkamannafélagi, sem eru þar starfandi sem verkamenn. Ég minntist á það í frumræðu minni og vísa til þess, að mér finnst mjög óeðlilegt, að félögunum sé ekki frjálst að hafa innan sinna vébanda menn, sem hafa áhuga á verkalýðsmálum, þó að þeir vinni ekki á því starfssviði, sem félagið er myndað utan um. Eftir að myndað var sérstakt verkamannafélag meðal sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, „Þór“, þá hygg ég, að hv. þm. Hafnf. hafi verið mikið riðinn þar við, þó að hann sé þar kannske ekki félagi. Sýnir þetta, að verkamenn vilja hafa í félagsskap sínum menn, sem þeir treysta til að fara með þeirra hagsmunamál, þó að þeir séu ekki verkamenn.
Þá er annað atriði, sem hv. þm. vill lögbjóða, en það er, að ekki megi vera nema eitt verkamannafélag á hverjum stað. Hv. þm. sagðist ekki kippa sér upp við, þó að hér á Alþingi væri því borið við, að eitthvað bryti í bága við stjórnarskrána. Það mun satt vera, að oft er því haldið fram, að eitt og annað brjóti stjórnarskrána, en það er stundum hægt að sjá með vissu, að einhver atriði brjóti hana, og ég er þeirrar skoðunar, að enginn vafi sé, að með þessu, að fyrirskipa, að aðeins eitt félag sé á hverjum stað, þá eru brotin fyrirmæli stjórnarskrárinnar, og þegar af þessum ástæðum er ég á móti því. En ég er sammála hv. þm. Hafnf. um það, að óeðlilegt er, þegar mynduð eru fleiri en eitt félag á sama stað. Í þessu sambandi var hann að tala um, að það mundi vera brot á stjórnarskránni, þegar menn væru þvingaðir inn í verkamannafélögin. Hv. þm. veit, hvernig þessu hagar til í öllum verkamannafélögum. Það er þannig, að þau gera samning við atvinnurekendur um, að félagsmenn þeirra sitji fyrir vinnu. Slíkan samning hafa flokksmenn hv. þm. Hafnf. gert við verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði. Af þessu leiðir, að til þess að njóta vinnunnar ganga menn í félögin. Það eru því frjálsir samningar, sem hafa gert það að verkum, að verkamenn safnast inn í verkamannafélögin. Það er líka svo, að verkamenn hafa stundum samþ. að vinna ekki þar, sem ófélagsbundnir menn eru í vinnu. Það er þeim heimilt og brýtur ekki í bág við fyrirmæli l. Mönnum er ekki fyrirskipað að vinna, og þeir geta sett hvaða skilyrði sem er fyrir, að þeir vinni á þessari og þessari vinnustöð, og sumstaðar eru þau skilyrði sett, að þar vinni ekki ófélagsbundnir menn.
Svo er síðasta atriðið, um hlutfallskosninguna. Um það þarf ég ekki að ræða frekar. Ég benti á það í frumræðu minni, að það væri einsdæmi í sögu verklýðsmálanna, ef á að fara að lögbjóða félögunum, hvernig þau hagi kosningum sínum. Það eiga þau sjálf að ákveða. Það getur vel verið, að stundum hafi þau óheppileg form hvað þetta snertir, en það getur ekki leitt til þess, að löggjafinn eigi að setja reglur um það, því að það gæti orðið til þess að valda óeðlilegum flokkadrætti innan félaganna sjálfra.
Að lokum sagði hv. þm., og hann sagði það rétt, að ég hefði sagt, að mig skiptu litlu mál sjálfstæðismanna og kommúnista. Hann sagði, að sjálfstæðismenn hefðu talið kommúnistana í Hlíf skárri en Alþfl.-menn, af tvennu vondu. En að þeir skyldu ekki telja sjálfa sig bezta til þess að fara með stjórnina! Hví átti Kommfl., langminnsti flokkurinn í Hlíf, að komast þar í valdaaðstöðu? Hvers vegna kusu sjálfstæðismenn ekki sína eigin menn? Alþfl.-menn höfðu í þetta sinn engan atvinnurekanda í kjöri, og í formannssætið kusu þeir einn fátækasta verkamanninn. Hann sagði, að Alþfl.-menn hefðu ekki viljað samkomulag við sjálfstæðismennina í Hlíf, en við vitum það báðir jafnvel, að Alþfl.-menn vildu gjarnan eiga þar samleið með sjálfstæðismönnum, og gerðu til þess margar tilraunir, en það gat ekki tekizt, svo fast knýtt hafa verið böndin milli þeirra og kommúnista, en ég vona, að þau bönd rofni og samvinna takist til þess að hefja félagið upp úr því ófremdarástandi, sem skapazt hefir af því, að kommúnistar hafa komizt þar að, illu heilli, fyrir atbeina sjálfstæðismanna.