02.01.1940
Efri deild: 99. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í C-deild Alþingistíðinda. (2904)

105. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Forseti (EÁrna):

Ég vil biðja hv. 2. landsk. þm. að gera hlé á ræðu sinni meðan ég les upp till. til rökst. dagskrár, sem hæstv. forsrh. hefir afhent mér og hljóðar svo:

„Í trausti þess, að samningar takist milli fulltrúa þeirra verkamanna, sem lýðræðisflokkunum fylgja, er leiði til þess, að einungis eitt félag fyrir hverja stétt verði á hverju félagssvæði og engir geti gerzt meðlimir þess aðrir en menn þeirrar stéttar, er félagið er fyrir; ennfremur að hið bráðasta verði gerðar nauðsynlegar breytingar á Alþýðusambandi Íslands til þess, að það verði óháð öllum stjórnmálaflokkum og tryggt verði, að öllum meðlimum félaga sambandsins verði veitt jafnrétti til allra trúnaðarstarfa innan viðkomandi félags án tillits til stjórnmálaskoðana, þá tekur d. að svo stöddu ekki afstöðu til frv. þessa og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Þessi rökst. dagskrá liggur þá einnig fyrir til umræðu.