02.01.1940
Efri deild: 99. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í C-deild Alþingistíðinda. (2909)
105. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
*Bjarni Snæbjörnsson:
Þegar við 1. umr. gerði ég skýra grein fyrir skoðun minni á þeim hlutum, sem frv. fer fram á, að lagaðir verði, svo ég álít það ekki nema endurtekningu, ef ég byrjaði á því sama aftur. Það hefir heldur ekkert komið fram í umr., sem gefi mér tilefni til þess að taka aftur til máls um þau atriði.
Því, sem kom fram áðan frá hv. 2. landsk., hafði ég þegar svarað við 1. umr. og fer því ekki út í það aftur.
Það er eingöngu út frá dagskrártill. hæstv. forsrh., sem ég vildi segja nokkur orð. Ég er þeirrar skoðunar og ég lýsti því þegar við 1. umr. þessa máls, að ég tel það hæpið, að hægt verði að ganga frá samningum milli þessara aðila þannig, að vel fari. Ég álít þess vegna, að það væri heppilegra að öllu leyti, að Alþ. tæki ákveðna afstöðu til þessa máls, sérstaklega með tilliti til þess, að vinnufriður haldist í landinu.
En hæstv. atvmrh. var þá ekki alveg sömu skoðunar og ég. Það mætti segja, að hann hafi fullkomlega verið fylgjandi efni frv. og anda þess, en hann vildi heldur, að samkomu¬lagsleiðin væri reynd, enda veit ég, að meiri hl. þessarar hv. d. er því fylgjandi, að þetta mál verði ekki að svo komnu afgr. með lög¬gjöf, heldur verði reynt að fá samkomulag milli þessara aðila á þessu ári.
Ég álít þess vegna eins og sakir standa nú, að afgreiðsla þessa frv. muni ekki fást á þessu þingi, þar sem skoðanir manna eru svo skiptar um það, hvernig beri að afgreiða það. En mikill meiri hl. þessarar d. er áreiðanlega þeirrar skoðunar, að eitthvað verði að gera í þessu máli.
Ég vil því, þar sem ég álít, að í hinni rök¬studdu dagskrá frá hæstv. forsrh. séu tekin fram mjög svo mikilsverð atriði um það, hvað hv. d. álítur í þessum efnum, sætta mig við þá afgreiðslu málsins eins og nú standa sakir. En það er auðvitað mál, að ef ekki næst samkomu¬lag á þessu ári um afgreiðslu þessa máls utan þings, svo vel að það megi heita viðunandi, þá má búast við, að málið verði tekið upp aftur á Alþ. og þá leitað löggjafar.
Ég vil ekki fara sérstaklega orðum um dagskrártill. Ég mun geta fellt mig við að greiða henni atkv., því að í henni felst mikil bót, móti því að málið hefði enga afgreiðslu fengið á þessu þingi, og ég sé fram á, að málið getur ekki fengið afgreiðslu í þeirri mynd, sem ég bar það fram. Ég læt svo útrætt um það atriði frá minni hálfu.
Ég ætla ekki að fara að lengja umr. með því að fara að svara því, sem einstakir hv. þm. hafa sagt hér við þessa umr. Það hefir enga þýðingu fyrir málið, enda var því öllu svarað af mér við 1. umr. málsins. Ég vil þó geta þess, að það getur kannske valdið misskilningi, sem hv. 2. landsk. sagði, að hann vissi ekki til annars en að félögin hefðu fullkominn rétt til að velja hvaða mann sem þau vildu, hvaða stjórn¬málaflokki sem hann tilheyrði, í hvaða trúnaðarstöðu sem væri innan félagsins, en það hefir verið svo, að þeir hafa ekki getað verið kosnir á alþýðusambandsþing úr hvaða flokki sem er. Þessu er ætlazt til, að verði breytt samkv. dagskrártill., og hæstv. forsrh. tók skýrt fram, að það væri meiningin með dagskrártill. að reyna að fá því komið í kring, og þess vegna get ég sérstaklega eftir hans ummæli frekar verið með dagskrártill. en annars.