02.01.1940
Efri deild: 99. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í C-deild Alþingistíðinda. (2910)

105. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil aðeins gera aths. við nokkur ummæli hæstv. forsrh. í sambandi við þessa dagskrá. Það er um skilning á þessum orðum „að engir geti gerzt meðlimir þess aðrir en menn þeirrar stéttar“. Ég legg þann skilning í þetta, að hver, sem ræðst til starfs innan hverrar stéttar, eigi að sjálfsögðu frjálsan rétt til þess að ganga í félagsskap viðkomandi stéttar. Það er t. d. í l. Sjómannafélags Reykjavíkur, sem er nú á 5. ári 3. tugar, að þeir einir, sem hafa skilyrði til þess að komast í skiprúm, eiga rétt á að vera þar félagar. En menn, sem hafa kannske verið í félaginu frá því að það var stofnað. en hafa fyrir ofbeldi og pólitík verið reknir úr því, vilja líta svo á, að sjálfsagt sé að leyfa slíkum mönnum aftur inn í félagið, ef þeir óska þess.

Þá er annað, sem ég vildi aðeins leiðrétta hjá hæstv. ráðh. Hann sagði, að ég hefði lýst yfir, að kommúnistar væru dauðir í félögunum. Það sagði ég ekki, heldur að á Norðurlöndum væru þeir að mestu leyti þurrkaðir út. (Forsrh.: Við erum á Norðurlöndum). Ég meina Norðurlönd utan Íslands. Það getur vel verið, að eins fari hér, en því er ekki að neita, að í ýmsum félögum hefir verið nokkuð um þá, sérstaklega meðal hinna yngri manna.

Hæstv. ráðh. sagði, að til væri skipulagt félag, þar sem enginn alþýðuflokksmaður væri. Ég er ekki nægilega kunnugur á þessum stað, Hólmavík, en grunur minn er sá, að þeir séu fleiri en 3. Þetta mun hæstv. ráðh. vita, þeir munu yfirleitt hafa léð honum kjörfylgi sitt við síðustu kosningar, eða a. m. k. mestur hluti þeirra, sem eru í því félagi, en ég hygg að þeir séu alþýðuflokksmenn.

Að síðustu vil ég svo vara hv. þm. Hafnf., en hann dró nokkuð í efa það, sem ég sagði viðvíkjandi trúnaðarstörfum í félögunum. Þó hefi ég tekið skýrt fram, að það er ekki deilt um annað en trúnaðarstörf á alþýðusambandsþinginu, og það hefir verið það eina, sem hægt hefir verið að vitna í, að ekki væri algert jafnrétti um innan félaganna. Menn leggja svo mikið upp úr að hafa aðskilnað milli flokkanna í félögunum. En ég vil skjóta því fram, um leið og sú stefna verður ofan á, að ég tel mjög óviðeigandi, og þekkist enda hvergi í nokkru verkalýðsfélagi, að einn stjórnmálaflokkur myndi þar málfundafélag til þess að halda þar uppi sérstökum áróðri fyrir sérstakan flokk. Ég held, að slík félög verði að leggja niður, ef hægt á að vera að segja, að verkalýðsfélögin séu heildarsumtök, sem standi fyrir utan áhrif sérstakra stjórnmálaflokka. Þessu vil ég skjóta fram, því að þetta er ekki síður hættulegt fyrir verkamannahreyfinguna en þó að menn úr sérstökum flokki séu kosnir til að fara með mál félagsins á sambandþinginu.