18.04.1939
Efri deild: 43. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (2918)

78. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé

Páll Zóphóníasson:

Ég geri ráð fyrir, að þetta frv. verði athugað vel í n., enda þótt það sé flutt af nefnd. En ég vil nú fyrst og fremst láta í ljós ánægju mína yfir því að sjá aðra flytja frv. um vaxtaskatt en mig.

Þegar ég á sínum tíma var að baksa við að flytja frv. um vaxtaskatt, þá reiknaðist mér svo til, að það myndu vera um 40 millj. í verðbréfum og sparisjóðsinnstæðum, sem ekki væri borgaður af skattur. Nú er það ljóst, að eins og skattalögin eru framkvæmd í Reykjavik, þá mun nokkur hluti af þessum 40 millj. vera færður yfir á aðra en þá, sem eiga þær. Ef fylgt er þeirri reglu hér og henni á að fylgja um allt land, að strika út það, sem menn telja, að þeir skuldi, ef ekki er gefinn upp eigandi að skuldinni, svo hægt sé að sjá, að hann telji hana sem eign — en það er gert um stórar upphæðir á hverju ári —, þá eru það aðrir en þeir, sem eiga, sem borga eignarskatt af nokkrum hluta eigna í landinu og líka tekjuskatt, því vextir af slíkum skuldum eru ekki leyfðir til frádráttar. Þetta myndi lítið lagast með þessu frv. Það þarf að athuga betur en gert er í frv., að eignir og tekjur mynda líka grundvöll fyrir útsvörum. En með því að láta menn borga skatt í gegnum stofnun, eins og frv. gerir ráð fyrir, þá er enn frekari ástæða en nú til þess að hætta að telja fram vaxtafé, sem myndar tekjustofn fyrir útsvarsálagningu.

Ég vil beina því til þeirrar n., sem fær þetta mál til athugunar, að hún athugi gaumgæfilega, á hvern hátt hægt sé að ná í vaxtaskattinn án þess að missa vitneskjuna um, hverjir eigi þetta fé á vöxtum. Ég er hræddur um, að þegar þessi l. — ef frv. verður að l. — eru búin að vera í framkvæmd 2–3 ár, þá væru þeir, sem eiga stórar upphæðir á vöxtum, búnir að sjá, að þeir geta létt af sér útsvari með því að sleppa að telja það fram, en láta taka vaxtaskatt eftir þessum l. Það er þetta, sem ég óttast, og ég vil biðja n. að athuga vel, hvernig hægt er að setja undir þennan leka og tryggja það, að niðurjöfnunarnefndir og hreppsnefndir fái að vita, hverjir eigi eignirnar, svo þær komi til greina við útsvarsálagningu.