04.12.1939
Efri deild: 75. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (2932)

78. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé

*Jónas Jónsson:

Ég ætla ekki að mæla á móti þeirri ósk hv. 5. landsk., að þessu máli verði frestað um einn dag. Við, sem erum í fjvn., sjáum fram á. að það koma ný stórfelld útgjöld í sambandi við ófriðinn, og viljum leiða hv. þdm. það fyrir sjónir, að ríkissjóði veitir ekki af öllum tekjum, sem hægt er að fá. Enginn óskar eftir því, að ríkissjóður fari að safna skuldum fyrir daglegum þörfum, eins og kemur fyrir í harðæri. Hv. 5. landsk. þóttist geta fundið ráð til þess að bæta úr þessum annmarka viðvíkjandi innieignum manna. Áreiðanlega á þingið rétt á því að láta menn, sem hafa óframtaldar innieignir, ekki sleppa lengur. Það er ákaflega erfitt fyrir okkur þm. að verða að reyta saman tekjur í ríkissjóðinn fyrst og fremst með tollum af flestum nauðsynjavörum, en láta sleppa mörg undanfarin ár fjárbrallsmenn, sem svíkjast undan skatti. Hér er gerð tilraun til þess að ná sköttum af þeim, og treysti ég sérfróðum mönnum, sem fást við þetta mál, að láta ekki dragast, að þetta geti gengið gengum þingið. Ekki mun af veita fyrir ríkissjóð að fá þær tekjur.