15.02.1939
Sameinað þing: 1. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (3)

Varamaður tekur þingsæti

Þá skýrði aldursforseti frá því, að sér hefði borizt svohljóðandi bréf frá Pétri Halldórssyni 4. þm. Reykv.:

„Með því að ég sé fram á það, að ég muni ekki fyrst um sinn, a. m. k. næsta 3–4 vikna tíma, geta átt setu á Alþingi sakir veikinda, hefi ég gert ráðstafanir til þess, að varamaður taki sæti mitt á þinginu á forföllum mínum.

Þetta er yður herra forseti, hér með tilkynnt, með skírskotun til 144. gr. kosningarlaganna.

Reykjavík, 14. febr. 1939.

Virðingarfyllst

Pétur Halldórsson.

4. þm. Reykv.

Forseti sameinaðs þings.“

Aldursforseti lýsti yfir því, að samkvæmt þessu hefði varamaður 4. þm. Reykv., Jóhann G. Möller, tekið sæti hans á þingi.