24.02.1939
Neðri deild: 7. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í C-deild Alþingistíðinda. (3028)
13. mál, Raufarhafnarlæknishérað
*Flm. (Gísli Guðmundsson):
Þetta frv. fjallar um að stofna nýtt læknishérað, þannig að hluta af núverandi Öxarfjarðar- og Þistilfjarðarlæknishéraði verði steypt saman í nýtt læknishérað, sem nefnist Raufarhafnarlæknishérað. Í frv. er gert ráð fyrir, að þessi breyt. verði gerð, þegar landlæknir hefir athugað málið og mælir með því.
Ég hefi flutt þetta frv. áður hér í þessari hv. d., en það hefir ekki náð fram að ganga, en þó hefir hæstv. Alþ. sýnt málinu þann skilning, að í núgildandi fjárl. eru veittar eitt þús. kr. til þess að læknir geti starfað á Raufarhöfn um síldveiðitímann. Þetta er að vísu nokkur bót í máli og sýnir, að hæstv. Alþ. hefir að vissu leyti viðurkennt nauðsyn þess máls, sem frv. fjallar um. Hinsvegar er þessi úrlausn ekki fullnægjandi, sérstaklega vegna þess, að engan veginn er tryggt, að læknir sé fáanlegur til að starfa á þessum stað um síldveiðitímann fyrir þessa borgun.
Um nauðsynina til að stofna þetta læknishérað get ég vísað til grg. frv. og fylgiskjals, sem prentað er með henni, og er það erindi frá borgarafundi, sem haldinn var fyrir nokkru á Raufarhöfn, þar sem þetta mál var rætt.
Skal ég svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en vænti þess, að málið mæti nú góðum undirtektum í þeirri n., sem fær það til meðferðar. — Vil ég svo óska þess, að málinu verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og allshn.