14.03.1939
Neðri deild: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í C-deild Alþingistíðinda. (3051)
31. mál, eignarnám lands í Ölfusi til nýbýla
*Flm. (Steingrímur Steinþórsson) :
Ég hefi ásamt 3 öðrum leyft mér að flytja frv. á þskj. 45 um heimild til að taka land í Ölfusi eignarnámi, svo sem nægi til stofnunar samvinnubyggðar, og ég tel rétt að fara um það örfáum orðum, hvað fyrir okkur vakir með þessu.
Í fyrsta lagi er landið, sem þarna liggur, eitthvert það albezta, sem völ er á um þessar slóðir. Þetta eru hallfleyttar mýrar móti sól og suðri, framræsla auðveld, vegur liggur yfir þær, svo að ekki skortir samgöngur. Rafveita er auðfengin frá Sogsveitunni, þegar þéttbýli er komið. Og svo nærri er þetta heitum stöðum, að hitaveita til nýbýlahverfisins virðist vel koma til mála í framtíðinni.
Land þetta er í eigu allmargra jarða. Það mundi verða miklum erfiðleikum bundið að semja um afhending þess við eigendur þeirra allra. Það þarf að taka svæðið fyrir allt í einu. Þá er eignarnámsheimildin nauðsynleg. Vitanlega verður að taka eins og unnt er tillit til landsþarfa þeirra býla, sem fyrir eru og skerða þær ekki meir en svo, að þar verði, með aukinni ræktun, rekinn lífvænlegur búskapur.
Það er nú svo, að vegna þess að ríkið hefir ekki umráð yfir góðum ræktunarlöndum, hefir það orðið að leggja mikla vinnu og kostnað í framræslu og umbætur á stað, sem ýmsir telja óheppilegan, austur í Flóa. Það er illa farið, ef atvinnubótavinna verður af slíkum ástæðum að miklu minna gagni en verða mætti. Því þarf vitanlega að hugsa fyrir í tíma, hvernig hún verði bezt notuð í framtíðinni. — Þarna liggja mörg hundruð hektara, og engin hreyfing sést á því, að eigendurnir ætli eða geti af eigin rammleik ræktað mikið af því. Þá finnst mér ekki gengið þörfum meir á rétt býlanna, þótt rannsakað sé, hvort ríkið eigi ekki að hefja þarna framkvæmdir og taka umráð lands, sem þau geta misst. Fyrst er að rannsaka, eignarnám og framkvæmdir bíða þess, að sú rannsókn gefi góðar vonir.
En mér finnst ekki leggjandi í rannsóknirnar. nema þingvilji sé fyrir því, að eitthvað verði með árangur þeirra gert. Svo framarlega sem þingið fellst á þessa eignarnámsheimild, tel ég gefið, og við flm., að rannsókn skuli skera úr því, hvort heimildin verði notuð eða ekki.
Ég vil svo gera að till. minni, að frv. verði að lokinni umr. vísað til landbn. og 2. umr.