14.03.1939
Neðri deild: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í C-deild Alþingistíðinda. (3054)
31. mál, eignarnám lands í Ölfusi til nýbýla
*Þorsteinn Briem:
Ég verð að ætla, eftir því sem umr. hafa fallið um þetta mál, að ákvæðin í frv. þessu um legu landsins séu tæplega nógu glögg. Mér skilst á því, sem einn hv. þm. hefir talað hér, að hann muni eiga við landið sunnan og vestan Ingólfsfjalls. Hinsvegar verður ekki séð af frv. neitt glögglega, hvort átt er við þetta land aðeins eða annað miklu stærra land, því að ákvæðið, sem hér er í fyrirsögninni, er ekki nákvæmt, og sízt er nákvæmar um þetta til tekið í frv. sjálfu. Mér virðist hér því allt of ógreinilega til tekið, til hvað stórs landsvæðis þessari heimild um eignarnám er ætlað að ná. Ég sé ástæðu til að skjóta þessu fram til athugunar fyrir þá n., sem fær málið til meðferðar, að ég hygg, að áður en hægt sé að taka afstöðu til frv., verði að setja hér skýrari ákvæði um þetta. Ég fyrir mitt leyti leit svo á við yfirlestur frv. áður en það kom til umr. hér, að með því væri átt við miklu stærra svæði heldur en mér skilst á hv. 2. þm. Árn., sem talaði áðan.
Þegar til þess ráðs er tekið að taka land eignarnámi, þá er það eðlileg ósk þm að spyrjast fyrir um það, hvort rannsókn hafi farið fram viðvíkjandi nauðsyn þess að taka landið og hvernig aðstaða sé þar öll. En mér skilst á hv. 1. flm. málsins sem sú rannsókn hafi ekki farið fram, og þykir mér það heldur miður. En ég geri þó ráð fyrir, að enda þótt full rannsókn hafi ekki farið fram um þetta, þá hafi þó af hálfu Búnaðarfélags Íslands farið fram allrækileg athugun á þessu efni, svo að það gætu komið fram í nál. a. m. k. meiri upplýsingar heldur en gefnar eru í grg. frv.
Í sambandi við þetta mál er náttúrlega mjög æskilegt að fá að vita, hversu mikið land ríkissjóður hefir nú nýlega eignazt í næstu sveit þarna austan við Ölfusið í sambandi við Flóaáveituna, og að þeim upplýsingum fengnum mun verða hægt að gera sér gleggri grein fyrir nauðsyn þessa máls, sem hér er flutt.