14.03.1939
Neðri deild: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í C-deild Alþingistíðinda. (3056)
31. mál, eignarnám lands í Ölfusi til nýbýla
*Bjarni Bjarnason:
Viðvíkjandi því, sem sagt hefir verið hér um þetta mál, vil ég geta þess, að ég geri ráð fyrir, að ef um það væri að ræða að mynda samvinnubyggð á þessu umrædda landi, þá yrði til þess að það gæti talizt gerlegt að kaupa upp nokkrar jarðir á þessu svæði. Ég gæti hugsað mér, að í framtíðinni yrðu þarna einar 12 jarðir keyptar og þeim breytt þannig, að byggðin yrði skammt fyrir utan Reykjahjáleigu í Ölfusi og bugurinn vestan Ingólfsfjalls, sunnan Grafningsháls og Reykjafjalls, hagnýttur þaðan með ræktunarvegum út frá þessari byggð. En ég geri ráð fyrir, að þetta hafi ekki vakað fyrir hv. flm. frv.
Nú eru miklir erfiðleikar í fjárhagsmálum, og framkvæmdir í því að byggja upp eru erfiðleikum bundnar. Ég get því ekki hugsað mér, að ráðizt verði í þetta bráðlega.
Það er vitanlega rétt að hafa samvinnubyggðirnar í kringum mjólkurbúin. En staðháttaframleiðsla er atriði, sem ég geri ráð fyrir, að ekki sé hægt að tengja við þetta samvinnubyggðamál, með það fyrir augum að reka fyrirmyndarbúskap. Staðháttaframleiðslan verður fyrst og fremst algert deilumál í landinu áður en henni verður komið á. Og í öðru lagi, ef við ættum að mynda fyrirmyndarbyggð, þá ætti hún að hafa skilyrði til þess, að þar væri rekinn sveitabúskapur eins og hann er fjölbreyttastur, sem sé bæði með sauðfjárrækt og kúm. Það væri heldur ekkert sérlega æskilegt að reisa fyrirmyndarbú á samvinnugrundvelli þar, sem ekki væru skilyrði til að reka alhliða búskap. Ég vildi aðeins taka þetta fram af því tilefni, sem hv. 1. flm. gaf til þess við umr. En vitanlega byggist lausn þessa máls á því, hvaða skoðun verður ofan á um stærð býlanna, og í öðru lagi hvernig tekst að fullnota það land, sem tekið yrði til afnota í slíku skyni. Það eru svo mjög mörg sjónarmið, sem koma til greina í sambandi við frv., og mætti taka það fyrir og gera álit um það í mjög löngu máli og merkilegu með tilliti til framtíðarinnar og einnig með tilliti til bráðrar lausnar í náinni framtíð.
Ég hygg, að raunin verði sú, að til þess að reisa fyrirmyndarbú með það fyrir augum að hafa bæði sauðfjárbú og kúabú, verði þetta umrædda land of lítið.