16.03.1939
Neðri deild: 20. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (3063)
33. mál, alþýðutryggingar
*Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Það er rétt, að eftirlaunasjóður Landsbankans er ákveðinn með l., svo að meðlimir hans hafa hér ekkert um að segja. Aftur á móti gildir ekki það sama um Útvegsbankann, þó að hann hafi á síðasta þingi verið tekinn með Landsbankanum í þessu efni.
Ég get gefið þá skýringu, að ég hygg, að málið hafi ekki verið athugað eins og skyldi, þegar það var afgr. í fyrra. Ég get vel skilið, að bankamenn séu ekki fúsir á að taka á sig viðbótargjöld, en ég vænti hinsvegar, að hv. dm. sé það ljóst, að ef Landsbankinn á að vera undanþeginn, verður niðurstaðan sú, að meginhluti af mönnum með sæmilegar tekjur vill heldur mynda sína eigin eftirlaunasjóði en vera í almenna sjóðnum. Fyrir allan þorra starfsmanna í bönkum munar þetta lítilli upphæð. Tökum t. d. giftan mann í Landsbankanum með 600 kr. mánaðartekjur. Hann ætti að borga 1% af skattskyldum tekjum, en það yrðu 30 kr. Auk þess í kr. fyrir sig og í kr. fyrir konu sína, alls um 44 kr. Frádrátturinn, miðaður við landið allt, nemur 25 kr. fyrir hjónin bæði. Eftir eru 19 kr. En meðaliðgjaldið í Reykjavík verður hærra, svo að frádrátturinn yrði meiri.