16.12.1939
Neðri deild: 85. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (3088)
51. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
Skúli Guðmundsson:
Eins og hv. frsm. sjútvn., hv. 6. þm. Reykv., tók fram, og eins og fram er tekið í nál. á þskj. 399, þá var enginn ágreiningur í sjútvn. um það, að æskilegt væri, að komið væri á slíkum tryggingum, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., á einhvern hátt. Hinsvegar var nokkur skoðanamunur hjá nm. um það, hvernig réttast væri að hafa fyrirkomulag þessara hlutatrygginga.
N. hefir nú borið fram nokkrar brtt. á þskj. 146, en auk þess höfum við hv. þm. Barð. borið fram till. til breyt. á þeim brtt. á þskj. 447. Það komu þó fram fleiri sjónarmið í þessu máli í n. heldur en komið hafa fram í brtt. Ég lét í ljós þá skoðun við meðferð málsins í n., að ég teldi réttara, að bæjar- og sveitarfélög legðu fram hluta af þessu tryggingarfé á móti ríkinu, þannig að greiðslan frá ríkinu yrði lægri heldur en gert er ráð fyrir í frv. Hinsvegar vildi meiri hl. n. ekki á það fallast að taka þetta ákvæði upp í brtt., og ég hefi ekki að svo stöddu gert ágreining um þetta á þann hátt að bera fram sérstaka brtt. um þetta atriði.
Í frv. er gert ráð fyrir, að framlag ríkisins til þessara sjóða verði til að byrja með jafnt framlagi útgerðarinnar, 1% af verðmæti aflans. Ég hefi viljað hafa þetta ákvæði þannig, að ríkissjóður leggi fram ½%, en bæjar- og sveitarsjóðir á viðkomandi stöðum ½% á móti. Á móti þessu hefir verið haft af meiri hl. n. og færðar fram þær ástæður, að hagur bæjar- og sveitarfélaga sé yfirleitt það erfiður, að þeim muni vera um megn að leggja fram í þessa tryggingarsjóði. Ég vil hinsvegar benda á, að slík framlög af hálfu bæjar- og sveitarfélaga til þess að efla og auka útgerðarstartsemina myndu í mörgum tilfellum verða til þess að draga úr framlagi þeirra til atvinnubóta, fátækraframfæris og annara slíkra hluta. Ég álít það í alla staði heppilegra, að bæjar- og sveitarsjóðir leggi fram fé til að auka framleiðslustarfsemina hver á sínum stað heldur en að þurfa að leggja jafnmiklar og oft stærri fjárhæðir til óarðbærra hluta, aðeins til þess að halda lífinu í fólkinu. Ég hefi ekki á þessu stigi málsins gert brtt. um þetta atriði, og sé því ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum. Ég vil aðeins benda á, að þó það sé rétt, að hagur margra bæjar- og sveitarfélaga sé erfiður, þá eru líka takmörk fyrir því, hvað ríkissjóður getur lagt mikið fé fram til nýmæla eins og nú standa sakir.
Við vorum að reyna að gera okkur grein fyrir, hvað þetta frv., ef samþ. verður, hefir í för með sér mikil útgjöld fyrir ríkissjóð. Við getum nú ekki sagt um það með neinni vissu, en n. áætlaði, að það gæti orðið á næsta ári um 100 þús. kr., og það er mikið fé. Ef bæjar- og sveitarfélög legðu aftur á móti fram helming, þá lækkaði framlag ríkissjóðs sem því svarar.
Brtt., sem ég flyt á þskj. 447 ásamt hv. þm. Barð., gera ráð fyrir allveigamiklum breyt., sem gætu orðið til þess að lækka allmikið framlög ríkisins frá því, sem er í frv. Við viljum koma þessu á þann grundvöll, að þetta séu frjálsar tryggingar. að það sé ekki fyrirskipað öllum, sem gera út skip með hlutaráðningu, að greiða í jöfnunarsjóði, heldur fari það eftir vilja útgerðarmanna og sjómanna á hverjum útgerðarstað, hvort þeir leggi fram þetta fé. við sjáum ekki ástæðu til, ef útgerðarmenn og sjómenn í einhverri verstöð kæra sig ekki um slíkar tryggingar, að skylda þá til að koma þeim á. Við álítum eðlilegra, að þetta sé frjálst.
Um hitt er enginn ágreiningur í n., að það sé réttast, að haldið sé sérstökum sjóði hvers bæjar- eða sveitarfélags.
Upphaflega var gert ráð fyrir í frv., að það væri einn sjóður fyrir allt landið. Það er enginn ágreiningur um vörzlu þessara sjóða og stjórn þeirra, og höfum við því ekki borið fram brtt. um það atriði frv. Það er gert ráð fyrir. að stjórn, kosin af þinginu, fari með stjórn þessara sjóða. Hún hefir þá vitanlega undir höndum alla þá jöfnunarsjóði, sem stofnaðir kynnu að verða, og er ætlunin, að þeim sé haldið aðgreindum hverjum fyrir sig. Um þetta er enginn ágreiningur.
Ég vil að síðustu vekja athygli á því, sem tekið er fram í nál., að fylgi einstakra nm. við frv. fer eftir því, hverja afgreiðslu brtt. fá, og þá sérstaklega eftir því, hvort samkomulag verður um það á þingi að taka í þau fjárl. sem nú á að afgr., þá fjárhæð, sem þetta myndi hafa í för með sér, ef að l. verður. Við lítum svo á, að það komi ekki til mála að fara að gera þetta frv. að l., nema jafnframt sé gert ráð fyrir þeirri upphæð, sem það hefir í för með sér, við afgreiðslu fjárl.
Ég vil því um leið og ég óska, að brtt. okkar hv. þm. Barð., sem ganga út á það, að þarna verði um frjálsar tryggingar að ræða í hverri verstöð, og aðeins ef meiri hluti sjómanna og útgerðarmanna óskar eftir þeim, verði samþ., mæla með því að frv. verði þannig breyttu vísað til 3. umr., en ég mun ekki greiða atkv. með málinu út úr d. fyrr en séð er, hvort fjvn. og þingið í heild getur á það fallizt, að taka þá upphæð á fjárl., sem samþykkt frv. myndi hafa í för með sér.