18.12.1939
Neðri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (3099)

51. mál, jöfnunarsjóður aflahluta

Bergur Jónsson:

Ég er satt að segja alveg hissa á, hvernig hv. 6. þm. Reykv. tekur undir þessa till. Hann sagði, að þetta væri ósæmileg framkoma hjá mér. Hann veit þó sjálfur, að á fjöldamörgum fundum voru nm., og jafnvel hann sjálfur, sammála okkur um að bíða eftir yfirlýsingu frá hæstv. fjmrh. um það, hvort bann teldi mögulegt að taka upp þau útgjöld, sem þetta frv. mundi hafa í för með sér, og fékk nefndin hæstv. ráðh. til þess að mæta á einum nefndarfundi til þess að heyra undirtektir hans.

Það er alls ekki rétt hjá honum, að í sjútvn. hafi nokkurn tíma verið fallið frá því að setja svona bráðabirgðaákvæði inn í frv. Það hefir beinlínis verið vilji allra, nema þá ef til vill hans, að reyna að fá sem mesta vissu fyrir því, áður en frv. yrði afgr. til fulls, að fjárveitingavaldið vildi ganga inn á að veita þetta fé, sem mun vera kringum 200 þús. kr., et sjóðirnir verða stofnaðir alstaðar samkv. ákvæðum frv. Það virðist því stafa af skapvonzku, að hann talar um ósæmilega framkomu, að komið sé aftan að málinu og verið með óheilindi og ósæmilega aðferð. Hann stóð upp sem siðferðispostuli hér í d., þegar rætt var um ríkisreikningana hér um daginn, og hélt mikla siðferðisprédikun yfir hv. 1. þm. Rang., og sagði þá, að sá þm., sem væri góður maður utan þings, mætti ekki vera með dylgjur, getsakir og ósæmilegt orðbragð í þinginu. Nú er hann með leiðinlegar dylgjur og illt orðbragð í minn garð fyrir það, að ég hefi komið með till., sem er í algerðu samræmi við það, sem nm. hafa sagt um málið.

Hv. þm. sekir, að till. mín sé til að eyðileggja málið. Ég vil þá spyrja hann, hvort það sé meining hans, að Alþingi sem löggjafarsamkoma eigi að samþ. svona 1. án þess að slá þann varnagla, að Alþingi sem fjárveitingarsamkoma vilji leggja þetta fé fram, og eiga á hættu, að Alþingi kannske neiti að taka fjárveitinguna upp í fjárlög. Stendur þá fjárveitingarvald Sþ. andstætt löggjafarvaldi deilda Alþingis. Hv. 6. þm. Reykv. hlýtur að sjá þá veilu, sem er í þessari afstöðu hans. Hann veit vel, að ég og aðrir hv. nm. tókum vel undir þá meginhugsun, sem í þessu frv. felst, og vildum greiða fyrir því, en við vildum ekki gera það nema með því skilyrði, að Sþ. vildi taka upp í fjárlög þá fjárveitingu, sem óhjákvæmileg er til að þessi ákvæði geti náð tilgangi sínum.

Ég vil svo vona, að ef þessi hv. þm. stendur upp aftur, þá verði hann líkari þeim siðferðisprédikara, sem var að tala við hv. 1. þm. Rang. hér um daginn, heldur en þeim orðhák, sem hann sýndi áðan, sem var með dylgjur og yfirlýsingar um, að ég væri að vega að baki málsins, og brá mér um óheilindi og ósæmilega framkomu.