18.12.1939
Neðri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í C-deild Alþingistíðinda. (3104)
51. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
*Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):
Mér er alveg óskiljanlegt, að brtt. sú, sem hv. þm. Barð. flytur. skuli geta valdið ágreiningi. — A. m. k. finnst mér, að ekki geti verið ágreiningur um það, að óheppilegt sé að ganga þannig frá lagasetningum, er gera ráð fyrir stórkostlegum útgjöldum fyrir ríkissjóð, að ekki sé jafnframt gert ráð fyrir tekjuöflun í fjárl., er staðizt gæti þau útgjöld. Á undanförnum árum hefir töluvert verið gert að því að setja hámarksákvæði í l., þ. e. að útgjöld séu miðuð við hámark, og til þess ætlað fé á fjárl., — eða l. eru afgr. með því ákvæði, að þau komi ekki til framkvæmda, nema til þess sé ætlað fé í fjárl. Mér virðist, að það ætti að vera ófrávíkjanleg regla, að Alþ. gengi ekki frá l., sem hafa útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð, án þess að setja annaðhvort ákvæði um hámarksupphæð, sem þá yrði veitt í fjárl., eða ákvæði um, að l. kæmu ekki til framkvæmda nema því aðeins, að fé sé til þess ætlað í fjárl. Vil ég skora á hv. þm. að víkja ekki frá þessari reglu.
Mér finnst alveg ástæðulaust að bregða mönnum um það, að þeir vilji málum illa, þótt þeir vilji afgr. þau á þennan hátt. Ég vil í þessu sambandi benda á, að við afgreiðslu fjárl., sem fyrir liggja, hefir verið samþ. að skera niður fjárframlög til landbúnaðar, sem engum hefði undir venjulegum kringumstæðum dottið í hug að fella niður. Kemur því til álita við afgreiðslu fjárl., hvort þessi nýju fjárframlög eru rétthærri en þau, sem fyrir eru í fjárl.
Ég mun svo ekki fara fleiri orðum um þetta mál, en vildi aðeins benda á, að till. hv. þm. er ekki ný bóla, heldur hefir verið reynt að koma þessu principi inn í öll l., vegna þeirrar reynslu, sem við höfum haft af hinum svokölluðu harmonikulögum, þ. e. þeim lögum, sem þannig eru afgreidd, að ekki er hægt að segja, hvaða útgjöld þau hafa í för með sér.