14.04.1939
Neðri deild: 40. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í C-deild Alþingistíðinda. (3136)

72. mál, alþýðutryggingar

*Flm. (Sigurður Kristjánsson):

Herra forseti! Þetta er mjög fyrirferðarlítið frv. Viðvíkjandi 1. gr. skal ég geta þess, að samkv. tryggingarlögunum er skylt að slysatryggja menn, sem vinna við bjargsig. Nú er það nokkuð mismunandi, hvernig þessi atvinnugrein et svo má kalla, er stunduð á ýmsum stöðum hér á landi. En þar, sem ég þekki til, sem er sérstaklega við bjargsig við Hornbjarg og Hælavíkurbjarg fyrir N-Vesturlandi, er eggjatekjan svo að segja eingöngu stunduð í sambandi við bjargsig. Eru þar venjulega hafðir um 6 menn við hvern vað, og mun vera sjaldgæft, að slys hendi aðra en þá, sem í bjarginu eru, eða sigmennina. En upphaflega var skyldutrygging á öllu því fólki, sem þarna vann að, eða kannske 6 mönnum við hverja festi. Sumir gera sér það að atvinnu að síga í bjarg. En mjög er það algengt innan sveita, að bændur fari með heimilisfólk sitt í bjarg, til þess að afla eggja í búið. Miðað við, að hver maður sé skyldugur til að tryggja sig fyrir 25 kr. á viku, er hér um svo hátt gjald að ræða, samanborið við tekjurnar, að allar líkur eru til þess, að leggjast mundi niður, að menn reyndu að afla þessarar bjargar í búið. Nú segir mér forstöðumaður trygginganna, að búið sé að breyta þessu með reglugerð, þannig að full trygging sé aðeins tekin fyrir festarmenn, en aðrir séu tryggðir með smáupphæðum. Má vel vera, að við þetta megi sitja. Ætlast ég til þess, að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, rannsaki þetta nánar. Það getur ekki talizt tilfinnanlegt gjald, þótt menn yrðu að greiða 2–3 kr. í vikutryggingu, því vitanlega getur það komið fyrir, að menn farist af bjargbrún, og hefir nýlega orðið slíkt slys í Vestmannaeyjum.

Það er athugunarmál fyrir n., hvort ekki mætti láta gilda aðrar reglur á einum stað en öðrum, eftir staðháttum. Sumstaðar fara menn festarlausir í bjarg, til þess að afla eggja, og einnig til fuglatekju. Þar er vitanlega slysahættara en á öðrum stöðum, þar sem engir fara í bjargið nema festarmaðurinn einn. Annars sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta atriði, því n. mun taka það til nánari athugunar.

Önnur gr. frv. er um það, að slaka nokkuð á tyggingarskyldunni á smábátum. Þessu hagar svo til, a. m. k. sumstaðar, að menn verða að vera bundnir við skipin svo mánuðum skiptir, þótt óhagstætt tíðarfar hamli sjóferðum heilar vikur — og vikum saman jafnvel. Tryggingarskyldan verður nokkuð þungbær fyrir þessa menn. Ég veit dæmi þess, að ekki hafi orðið sjóferð nema þrisvar í mánuði, og þá er engin sanngirni, að menn þurfi að tryggja eftir sama mælikvarða og þegar róið er daglega, eða eftir sama mælikvarða og þau skip, sem liggja úti til þess að stunda veiðar hvern dag. Nú hefi ég farið fram á í þessu frv., að telja skuli minnst 4 daga í tryggingarviku, eða 4 sjóferðir. Hefi ég átt tal um þetta bæði við þann mann, sem með slysatryggingarnar hefir sérstaklega að gera, og eins við yfirmann tryggingarstofnunarinnar, Harald Guðmundsson alþm., og þeir hafa báðir fallizt á, að þessi mælikvarði væri sanngjarn og hafa um nokkurt skeið látið þau boð út ganga til tryggingarstjóra, að þeir skyldu láta fram koma nokkra linun á þessum ákvæðum. En vitanlega er bezt að hafa þetta ótvírætt í l. sjálfum, svo að yfirmaður stofnunarinnar hafi að einhverju að halda sig. Haraldur Guðmundsson sagði mér, að hann væri þó heldur á móti því, að þetta næði til báta, sem væru 12 smál. eða stærri. Nú háttar svo til, að bátar af þessari stærð, 12–20 smál., ganga á haustvertíðinni á Vesturlandi. Og á þeim tíma árs, frá hausti og til áramóta og jafnvel fram í janúar og febrúar, er tíðarfar ákaflega stopult, svo að þessir bátar verða oft að hafa landlegur kannske 4 daga af hverjum 5.

Ég vil ekki setja mig þvert á móti því, að bátar, sem eru 12 smál. og stærri, séu undanskildir ákvæðum þessa frv. Þó vildi ég mælast til þess, að n., sem fær þetta mál til meðferðar, rannsaki ýtarlega allar aðstæður, og sérstaklega, hvort ekki mætti hafa undantekningarákvæði þar, sem svo hagar til, að hætta er á, að haustróðrar leggist af vegna þungra gjalda, þar á meðal þessara tryggingargjalda.

Ég vildi svo óska eftir því, að málinu verði vísað til 2. umr., og ég held það eigi heima hjá allshn.