06.11.1939
Neðri deild: 53. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (3151)

93. mál, skattfrelsi h/f Eimskipafélags Íslands

Finnur Jónsson:

Eftir öllum líkum að dæma, má telja það ósennilegt, að þetta mál verði afgr. í því formi, sem það nú liggur fyrir. Hinsvegar myndi ég telja ástæðu til, og vildi skjóta því til hæstv. ríkisstj., hvort ekki væri tiltækilegt að taka málið upp á öðrum grundvelli. Eimskipafélagið hefir nú tekið upp siglingar beint til Ameríku. Þessar siglingar eru svo dýrar, að sennilegt er, að flutningsgjöldin frá Ameríku verði nokkuð á annað hundrað krónur á hverju smálest af vörum. Þetta mun byggjast á því, að þau skip, sem Eimskipafélagið hefir, eru óhentug til slíkra langferða. Ég hefi hér í höndum skilríki fyrir því, að þau farmgjöld, sem önnur Norðurlönd borga, eru ekki nema lítið brot af því, sem Eimskipafélagið þarf að fá fyrir siglingarnar. Samkvæmt heimild í norskum l. voru 22. sept. síðastl. settar „hámarksfraktir“ á hveiti og rúg til norskra hafna, en þær eru n. kr. 33.00 frá austurströnd Kanada og Bandaríkjanna, n. kr. 38.00 frá Mexicoflóanum og n. kr. 55.00 frá vesturströnd Bandaríkjanna. Á þessu og þeim „fröktum“, sem við þurfum að greiða, er náttúrlega svo mikill munur. að það getur verið athugunarmál, hvort ekki myndi borga sig að styrkja Eimskipafélagið til að ná tökum á stóru flutningaskipi, sem gæti að einhverju leyti siglt fyrir lægra verð en skipin nú geta. Þótt ekki næðust eins lágar „fraktir“ eins og Norðmenn setja sem hámark, þá ætti það að geta orðið mikill stuðningur í því að halda niðri dýrtíðinni í landinu.

Ég hefi heyrt sagt, að ríkisstj. hafi nýlega gert ráðstafanir til að fá eina sérstaka vörutegund ódýrari en annars var kostur með því að leigja flutningaskip til að flytja olíu, og mun þannig vera hægt að halda olíuverðinu niðri. Ég geri ráð fyrir, að á fleiri sviðum væri hægt að ná hagfelldari kjörum um flutningsgjöld.

Ég vil að lokum mjög eindregið óska þess, að ríkisstj. vildi taka þetta til athugunar, hafi hún ekki þegar gert það.