25.11.1939
Neðri deild: 68. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (3208)
115. mál, fræðsla barna
*Pétur Halldórsson:
Herra forseti! Má ekki snúa þessu við og segja: Úr því að ríkið veitir 1/3 til byggingar skólahúsa í sveitum, þá er ástæðulaust að greiða úr ríkissjóði styrk til leikfimikennslunnar, heldur halda sig við það, að sveitirnar byggi þessi hús, sem þær fá þennan byggingarstyrk til. En þá sé það líka sanngirnismál, að ríkið taki þátt í þessum kostnaði í kaupstöðunum, þar sem miklu meiri áherzla er lögð þar á leikfimikennsluna heldur en í sveitunum. Í kaupstöðunum eru 2 tímar á viku fyrir leikfimi, en þess mun ekki krafizt í sveitum. En það, að ekki megi greiða þetta framlag vegna þess, að ríkissjóður tekur ekki að sér 1/3 kostnaðar við byggingu slíkra húsa í kaupstöðum, sé ég ekki að fái staðizt. Hér er um sérstakt mál að ræða, leikfimikennsluna með öllu því húsnæði, sem henni fylgir, en hún er kostnaðarsamari en nokkur önnur kennsla, sem fer fram í barnaskólunum.
Ég tel, að það sé ekki réttmætt, þegar hv. flm. heldur því fram, að fyrst þurfi að ganga inn á það grundvallaratriði, að ríkið leggi fram styrk til bygginganna. Það er miklu sanngjarnari krafa af hálfu kaupstaðanna, að fá aðstoð ríkisvaldsins í þessum efnum heldur en af hálfu sveitarfélaganna, og við það verð ég að miða. þegar ég segi, að ég trúi ekki öðru en hv. dm. fallist á, að þetta sé látið ganga jafnt yfir sveitir og kaupstaði.